Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 425
Fundur 425
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 7. júlí 2008 kl. 9:00. Mætt voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson, Halldóra B. Jónsdóttir Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd, 40. fundur, 26. júní 200
Fundargerð samþykkt
· Skólanefnd, 105. fundur, 25. júní 2008
Gerð grein fyrir mannaráðningum við grunnskólann og niðurstöðum samræmdra prófa. Halldóra gerði athugasemd við það að enn skuli auglýst eftir starfsmönnum við einstaka skóla, td. Hafnarskóla, en ekki Grunnskóla Hornafjarðar sem gerst hafi í einhverjum tilfellum.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 755. fundur, 27. júní 2008
Til kynningar
2. Ákvörðun um útboð á skólamáltíðum fyrir grunnskólanema í 4. – 10. bekk
(Árni vék af fundi undir þessum lið og Guðrún Ingimundardóttir kom á fundinn í staðinn) Farið yfir það fyrirkomulag sem verið hefur undanfarin ár og kynntar tillögur að útboðsgögnum.
Halldóra sagði það sína skoðun að eðlilegt hefði verið að bjóða þetta út strax í vor í ljósi þess að samningar séu lausir við Kaffihornið.
Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að fara yfir málið og taka það síðan upp á næsta fundi sem haldinn verður nk. miðvikudag kl. 12:00.
Hjalti sagði það sína skoðun að einnig þurfi að fara yfir fleiri svið sveitarfélagsins með útboð í huga og samninga byggða á þeim.
3. Greiðsla daggjalda hjúkrunarrýma, sbr. bréf heilbrigðisráðuneytis, dags. 27. júní 2008
(Árni kom aftur inn á fundinn og Guðrún vék af fundi.) Farið yfir bréf heilbrigðisráðuneytisins þar sem greint er frá því að samningsaðilar hafi fallist á að starfa áfram eftir eldri samningi þar til nýr samningur hefur verið undirritaður. Bæjarráð Hornafjarðar fagnar því að heilbrigðisráðuneytið hafi fallist á kröfur sveitarfélagsins en leggur áherslu á að unnið verði að krafti við gerð nýs langtímasamnings.
4. Hafnarbraut 40, sbr. bréf Ragnars Aðalsteinssonar hrl., dags. 23. júní 2008
Bréfið varðar meint tjón sem orðið hefur á húseigninni vegna sigs sem rakið er til framkvæmda við byggingu nýrrar sundlaugar. Bæjarstjóra falið að ræða við lögfræðistofu sveitarfélagsins, safna gögnum um málið og leggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
5. Sunnubraut – læknabústaður
Hjalti gerði grein fyrir ástandi læknabústaðar á Sunnubraut. Ræddi viðhaldsþörf á húsinu en einnig þá hugmynd sem hefur komið fram um að selja húsið. Halldóra lýsti þeirri skoðun sinni að frekar ætti að leggja í viðhald hússins en að kaupa nýtt. Þá spurðist hún fyrir um ráðstöfun fjár frá ríkinu sem verja á til viðhalds þeirra eigna í eigu ríkisins sem hér eru. Hjalti greindi frá fyrirhuguðum lagfæringum á húseignum heilbrigðisstofnunar. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um hvaða upphæðir fara í viðhald umræddra fasteigna. Starfsmönnum falið að skoða betur viðhaldsþörf á læknabústað við Sunnubraut.
6. Staðfesting samgönguráðuneytis um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sbr. bréf dags. 18. júní 2008
Til kynningar.
7. Ósk um styrki vegna lýsingar í dreifbýli, sbr. umsóknir þar að lútandi
Um er að ræða óskir frá fimm aðilum sem hyggjast nýta sér nýlega samþykktar reglur sveitarfélagsins um styrki til lýsingar í dreifbýli. Einnig farið yfir reglur sem samþykktar hafa verið vegna styrkja til lýsingar í dreifbýli. Bæjarráð samþykkir þær umsóknir sem komnar eru. Greiddur verður hámarksstyrkur sem er kr. 65.000.- á hvert heimili samkv. reglum. Samþykkt að lengja umsóknarfrest til 1. ágúst.
8. Athugasemdir við drög að fjallskilasamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, bréf sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, dags. 27. júní 2008
Farið yfir fram komnar athugasemdir ráðuneytisins. Hjalti sagði fram komnar athugasemdir skipta miklu máli. Samþykkt að vísa athugasemdunum til umsagnar og úrvinnslu í atvinnumálanefnd.
9. Ábendingar vegna samþykktar fyrir búfjarhald, sbr. bréf sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytis, dags. 26. júní 2008
Um er að ræða ábendingar um auglýsingaskyldu á samþykktum sem hér um ræðir.
10. Mótmæli við fyrirhugaða staðsetningu knattspyrnuhúss, sbr. bréf þar að lútandi
Fimmtán einstaklingar sem búsettir eru við Bogaslóð og Garðsbrún mótmæla fyrirhugaðri staðsetningu á knattspyrnuhúsi. Mótmælin byggja einkum á því að útsýni muni breytast mikið og hús við það falla í verði.
Í bréfi (tölvupóstur) sem barst frá aðalstjórn Umf. Sindra er staðsetningu knattspyrnuhúss fagnað. Staðsetningu sem hentar mjög vel að mati stjórnarinnar vegna nálægðar við önnur íþróttamannvirki. Halldóra gerði athugsemd við það að lögð séu fram bréf sem ekki eru undirrituð af þeim sem senda bréfið, í þessu tilfelli þeirra sem skipa aðalstjórnina.
Þá barst bréf (tölvupóstur) frá eigendum Málningarþjónustunnar ehf. sem óska þess að gengið verði til samninga við þá vegna þess hluta lóðar fyrirtækisins sem fer undir fyrirhugað knattspyrnuhús.
Bæjarráð samþykkir að framlengja umsagnarfrest um deiliskipulagstillögu vegna fyrirhugaðs knattspyrnuhúss um tvær vikur. Bæjarráð samþykkir einnig að vísa athugasemdum til byggingar- og skipulagsnefndar til umsagnar.
11. Veiðilaun fyrir refa- og minkaveiði
Haukur Ingi fór yfir málið og greindi frá því að veiðilaun hafi ekki hækkað um langt árabil.
Halldóra kallar eftir skýrslum um hvernig staðið er að veiðunum, hverjir stunda þær og hvaða árangur hafi orðið af refa- og minkaveiðum. Óskaði hún eftir því að málinu verði frestað uns þær upplýsingar liggja fyrir. Var það samþykkt.
12. Sauðfjárveikivarnir
Hjalti fór yfir málið og útskýrði alvarleika þess að Sauðfjárveikvarnalína hafi rofnað við það að Hornafjarðarfljót renna nú í einum farvegi vestan Svínafells. Núverandi sauðfjárveikivarnarlína liggur um Austurfljótin. Beðið er eftir viðbrögðum Matvælastofnunar að setja stefnu í þessu máli og grípa til viðeigandi ráðstafana. Undir þessum lið var einnig rætt um varnir við landbroti á Viðborðsströnd og í Svínafelli vegna ágangs Suðurfljóta.
13. Önnur mál
- Umsögn við nýjan veg yfir Öxi. Bæjarráð fagnar fyrirhuguðum breytingum á veginum yfir Öxi sem og þeim samgöngubótum sem af þessari framkvæmd verða.
- Greint frá því að fyrir liggi kaupsamningur vegna Álaleiru 1. Kaupandi er sveitarfélagið fyrir hönd Menningarmiðstöðvar. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við kaupsamninginn.
- Reynir ræddi um hvort koma ætti fyrir vefmyndavél í bænum.
- Halldóra spurðist fyrir um viðhaldsáætlun 2008 þar sem fram komi m.a. tímaáætlanir.
- Halldóra lagði til að ákveðinn hluti heimasíðu sveitarfélagsins verði á ensku. Var undir þetta tekið.
Fundi slitið kl. 11:30


