Fundargerð bæjarráðs 424
Fundur 424
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 23. júní 2008kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson, Halldóra B. Jónsdóttir Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Stefán Ólafsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 92. fundur 11. júní 2008.
Halldóra Bergljót gerði að umtalsefni boðun varamanna í nefndum þegar aðalmenn eru í fríi eða geta ekki mætt. Lagði hún til að varamenn nefnda jafnt sem aðalmenn fái fundarboð. Var undir það tekið.
Vegna 5. liðar á dagskrá nefndarinnar var samþykkt að vísa málinu til starfsmanna. Halldóra spurði hvort stætt sé að hafna umsókn. Árni sagði að nefndarmenn hafi talið að ekki hafi verið stætt á því að veita leyfið þar sem það samræmist ekki landnotkun samkv. aðalskipulagi. Árni lagði til að bæjarstjórn skipi stýrihóp (sbr. 6. lið) vegna endurskoðunar á aðalskipulagi á næsta fundi sínum. Var það samþykkt. Samþykkt að vísa til starfsmanna að kanna hvort hugsanleg skerðing á útlánum Íbúðalánasjóðs vegna nýbygginga eigi við um Sveitarfélagið Hornafjörð, sbr. bókun nefndarinnar, 7. lið.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 93. fundur 18. júní 2008.
Hjalti greindi frá samskiptum við starfsmenn í heilbrigðisráðuneytinu um uppgjör fyrir árið 2007 og um nýjan þjónustusamning og einnig greindi hann frá stöðunni í læknamálum. Halldóra ræddi rekstrarstöðu HSSA og sagði ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu mála og velti því fyrir sér hvort heilbrigðis- og öldrunarráð geri sér grein fyrir sínu hlutverki. Hjalti fór yfir þau samskipti sem verið hafa við ríkisvaldið um þessi mál. Þá mótmælti hann málflutningi Halldóru í þessu máli. Árni sagði fá mál hafa fengið jafnmikla umræðu og vinnu og þetta tiltekna mál og hafnaði málflutningi Halldóru. Reynir sagði það ómaklegt að halda því fram að ekkert hafi verið gert í þessu máli.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 79. fundur 10. júní 2008.
Vísað til starfsmanna að kanna stjórnun fólksvangsins í Óslandi, sbr. bókun. Halldóra bendir á að viðkomandi atvinnurekstur eigi að sjá til þess að skólp frá fyrirtækjum sé í lagi, sbr. 1. lið á dagskrá nefndarinnar. Bæjarráð tekur undir með umhverfisnefnd að veiðimenn skili skýrslum um þekkt greni.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálaráð Hornafjarðar, 183. fundur 10. júní 2008.
Upplýst að innflytjendamál eru með öðrum málum til vinnslu við fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk sýslumannsembættisins á Höfn um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis
· Bréf dags. 12. júní 2008, vegna sölu veitinga á Humarhöfninni, umsækjandi Anna Erla Þorsteinsdóttir.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að leyfið verði gefið út.
3. Ósk um umsögn á breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis í Skútustaðahreppi á norðurhluta Kröflusvæðis og suðurhluta Gjástykkis vegna fyrirhugaðrar nýtingar jarðvarma.
· Bréf samvinnunefndar um miðhálendi Íslands, dags. 5. júní 2008.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framangreinda breytingu.
4. Styrktarsjóður EBÍ 2008
· Bréf EBÍ dags. 6. júní 2008 vegna úthlutunar sjóðsins í ágúst.
Vísað til Menningarmiðstöðvar.
5. Ósk um gagnaöflun
· Bréf nefndar um vist og meðferðarheimili dags. 8. júní 2008.
Vísað til starfsmanna.
6. Ósk um umsögn vegna stofnunar lögbýlis
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við þessa fyrirhuguðu stofnun lögbýlis í Árnanesi II.
7. Erindi um stofnun Fjarskiptafélags Öræfinga
· Bréf Knúts Bruun dags. 15. júní 2008 ásamt gögnum um málið.
Hjalti greindi frá málinu og taldi að engar fjárskuldbindingar fylgdu hugsanlegri aðild sveitarfélagsins að Fjarskiptafélagi Öræfinga. Aðild að félaginu samþykkt með tveimur atkvæðum, Halldóra sat hjá.
8. Innsend bréf og erindi
· Cranet, rannsókn Háskólans í Reykjavík á áhrifum mannauðsstjórnunar á hegðun og viðhorf starfsfólks, bréf dags. 6. júní 2008, niðurstöður fyrir sveitarfélagið.
Til kynningar.
· Neytendastofa, bréf dags 10. júní 2008, seðilgjöld og aðrar sambærilegar fylgikröfur - úttekt.
Bæjarstjóra falið að ræða þetta mál við lögfræðing sveitarfélagsins.
· Jöfnunarsjóður, samkomulag um húsaleigubætur og greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Bæjarráð samþykkti samhljóða þrjár eftirfarandi bókanir:
Bókun vegna staðsetningar höfuðstöðva Vatnajökulsþjóðgarðs:
Bæjarráð Hornafjarðar mótmælir harðlega að skrifstofustarf við Vatnajökulsþjóðgarð hafi verið auglýst með aðsetur í miðborg Reykjavíkur og hvetur yfirstjórn þjóðgarðsins til þess að endurskoða ákvörðunina.
Einnig áréttar bæjarráð fyrri yfirlýsingar sínar og bæjarstjórnar þess efnis að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs skuli staðsettar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Tillaga þess efnis var lögð fram á stjórnarfundi Vatnajökulsþjóðgarðs þann 7. desember 2007 en niðurstaðan varð önnur.
Mikilvægt er að þau störf sem skapast í tengslum við uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs verði staðsett á áhrifasvæði þjóðgarðsins eins og lagt var upp með við allan undirbúning að stofnun hans. Eigi náttúruvernd að verða trúverðugur valkostur sem hluti af atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni er nauðsynlegt að stíga markviss skref í þá átt að fjölbreytt störf verði til á áhrifasvæði þjóðgarðsins. Bæjarráð hvetur umhverfisráðherra til þess að beita sér fyrir því að svo megi verða og vísar í samþykkt stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs frá 7. desember 2007 um að endurskoða eigi staðsetningu framkvæmdastjóra um leið og stjórnfyrirkomulag garðsins og krefst þess að það verði gert hið fyrsta.
Bókun vegna aksturs sérleyfishafa og ástand vegar í Hvalnes- og Þvottárskriðum:
Bæjarráð Hornafjarðar gerir alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun Þingvallaleiðar ehf. að breyta fyrirvaralaust aksturstímum á leiðinni Höfn – Egilsstaðir – Höfn. Þessi breyting var gerð án nokkurs samráðs við ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu og hefur komið sér afar illa fyrir þau sem meðal annars sést á því að afbókanir á gistingu hafa fylgt í kjölfar breytinganna. Þess er krafist að áætlun verði breytt í fyrra horf enda breytingar ekki heimilar samkvæmt útboðsskilmálum Vegagerðarinnar.
Bæjarráð skorar á Vegagerðina að sinna sínu eftirlitshlutverki með sérleyfishöfum.
Þá skorar bæjarráð á Vegagerðina að sjá til þess að framkvæmdir við veginn um Hvalnes- og Þvottárskriður leiði ekki til þess að vegurinn verði illfær að stórum hluta eins og verið hefur það sem af er þessu sumri.
Bókun vegna framtíðar Eystrahorns:
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir áhyggjum af framtíð héraðsfréttablaðsins Eystrahorns. Eystrahorn hefur verið mikilvægur þáttur í samfélaginu undanfarin 25 ár og því sjónarsviptir af blaðinu. Bæjarráð Hornafjarðar hvetur áhugafólk og frumkvöðla um að kanna kosti þess að halda útgáfunni áfram. Bæjarráð mun áfram fylgjast með gangi mála.
Halldóra spurðist fyrir um hjól sem dreifa á í fimmtán sveitarfélögum í samstarfi við Vodafone. Hjalti sagði þetta mál ekki hafa borist okkur.
Halldóra spurðist fyrir um samninga og vinnu vegna fyrirhugaðs knattspyrnuhúss. Hjalti greindi frá viðræðum við starfsmann Vegagerðarinnar og viðræðum við eiganda húss sem er staðsett á svæði fyrirhugaðs knattspyrnuhúss.
Reynir ræddi slátt og umhirðu í sveitarfélaginu sem hann taldi að hafi ekki verið í nógu góðu lagi á þessu sumri. Halldóra tók undir þessi orð Reynis og benti á nauðsyn þess að úða þurfi trjáplöntur á opnum svæðum.
Samþykkt að fara yfir fundartíma bæjaráðs í sumar og stefnt að næsta fundi 7. júlí.
Fundi slitið kl. 17:30


