Fundargerð bæjarráðs 434
434. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 29. september 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár. Fór hann fram á að fundargerðir byggingar- og skipulagsnefndar nr. 96, haldinn 24. sept. og 97, haldinn 25. sept. 2008, verði teknar fyrir undir liðnum fundargerðir og var það samþykkt.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð, 185. fundur, 23. september 2008
Bæjarráð tekur undir álit félagsmálaráðs að allir starfsmenn í framhaldsnámi sitji við sama borð bæði þeir sem nú eru í námi og þeir sem hefja nám síðar. Er það í samræmi við skoðanir sem fram komu á síðasta fundi bæjarráðs. Óskað var eftir skýringum frá félagsmálastjóra um samkomulag við Stígamót, fjölda heimsókna o.fl.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd, 107. fundur, 24. september 2008
Rætt um heimavist og starfsmannamál í leikskólum (vék Elín af fundi undir þeirri umræðu). Fram kom að skortur er á starfsfólki á Lönguhólum. Einnig greint frá fundum starfsmanna í ráðhúsi með leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra Lönguhóla sem og fundar með starfsmönnum Afls. Einnig hefur verið rætt um þessi mál við leikskólastjóra Krakkakots. Þá hafa þessi mál verið rædd við starfsmann á kjarasviði Sambands ísl. sveitarfélaga.
Fundargerð samþykkt.
· umhverfisnefnd, 81. fundur, 25. september 2008
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um húsnæðismál, 11. fundur, 11. september 2008
Áður samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 1. fundur, 16. og 23. september 2008
Árni vék að þeirri meginlínu sem fram kom um hugsanlegan flutning 1. – 3. bekkjar þar sem almenn samstaða sé í starfshópnum um það mál.
Björn Ingi benti á vinnu nefndar um húsnæðismál. Stefán sagði að þá vinnu muni þessi nefnd nota en ekki vinna upp aftur.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerðir byggingar- og skipulagsnefndar nr. 96, haldinn 24. sept. og nr. 97, haldinn 25. sept. (Bætt við útsenda dagskrá.)
Fundargerðir samþykktar.
2. Forsendur fjárhagsáætlunar 2009
Ásta fór yfir forsendurnar. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
3. Umsókn um styrk til menningarstarfs í Þórbergssetri
Samþykkt að vísa umsókninni til fjárhagsáætlunar 2009.
4. Áfangaskýrsla nefndar um húsnæðismál
Farið yfir skýrsluna. Björn Ingi velti fyrir sér 2. hæð millibyggingar sundlaugar og skólans. Taldi að efri hæðina ætti ekki að nýta sem sal fyrir skólann, leita ætti annarra leiða til að leysa mötuneytisaðstöðu fyrir elstu árgangana. Árni sagði þessa millibyggingu áfram vera til skoðunar hjá nefnd um húsnæðismál. Ekki komi fram í áfangaskýrslu nýting á neðri hæð millibyggingar.
5. Áhaldahús, Hornafjarðarveitur og Hornafjarðarhöfn
(Birgir Árnason sat fundinn undir þessum lið.) Farið var yfir útsend gögn, „Þjónustustöð”, sem snúa að rekstri ofangreindra stofnana. Hjalti sagði að taka þurfi þessa þætti til skoðunar fyrir fjárhagsáætlun 2009 og 3ja ára áætlun. Birgir sagði að þrátt fyrir hugmyndir um ákveðna úthýsingu þurfi að vera í áhaldahúsi ákveðinn grunnkjarni starfsmanna og tryggja þurfi honum næg verkefni. Fram kom ánægja með hugmyndir sem fram koma í framangreindum gögnum. Samþykkt að vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar 2009.
6. Erindisbréf fyrir starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi (sent í tölvupósti)
Björn Ingi áréttaði áður fram komna skoðun sína að þetta ætti að vera verkefni byggingar- og skipulagsnefndar. Árni sagði það sína skoðun að framboðin ættu að hafa tækifæri til að tilnefna fulltrúa í starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir framlögð drög að erindisbréfi með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7. Vettvangsferð um íþróttavelli
Haukur Ingi og Valdemar Einarsson fóru þessa ferð. Vísað til fjárhagsáætlunar 2009.
8. Útboð á jarðfyllingum á Leirusvæði
Haukur greindi frá vinnu vegna málsins og hugmyndum um að tvískipa verkefninu. Annars vegar að keyra strax efni yfir hluta svæðisins en dæla síðan í mars því sem upp á vantar. Björn Ingi sagði að kanna þurfi hugsanleg snefilefni úr höfninni ef dælt verði efni þaðan á Leirusvæðið. Þá gerði hann að umtalsefni samkeppnissjónarmið þegar endanleg ákvörðun verður tekin. Haukur Ingi lagði til að öllum tilboðum verði hafnað og gengið til samninga við Rósaberg og Dýpkunarfélagið Trölla ehf. Var sú tillaga samþykkt.
9. Drög að kaupsamningi vegna kaupa á „trésmíðaverkstæði” (sent í tölvupósti)
Hjalti fór yfir málið. Bæjarráð samþykkir fram lagðan samning.
10. Innsend bréf og erindi
Engin erindi bárust.


