Fundargerð bæjarráðs 436
436. fundur
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 98. fundur 8. október 2008.
Björn Ingi ræddi framkvæmdir sem einstaklingar/fyrirtæki hefja án þess að formlegt leyfi liggi fyrir. Hann sagði að árétta þurfi af hálfu bæjaryfirvalda að leyfi þurfi að sækja um áður en framkvæmdir eru hafnar, þ.e. er fyrir leyfisskyldar framkvæmdir. Var undir þetta tekið af öðrum fundarmönnum og samþykkt að slík árétting komi fram.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 186. fundur 14. október 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 106. fundur, 10. október 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar 3. fundur 8. október 2008.
Bæjarráð felur forstöðumanni Menningarmiðstöðvar að kanna til hlítar mögulegt sýningarrými fyrir listaverk í „gömlu slökkvistöðinni”
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 3. fundur 7. október og 4. fundur 14. október 2008.
Rætt um að hliðra þurfi til í kennsluhúsnæði á Höfn til að hægt verði að hefja framkvæmdir við endurbætur á skólahúsnæði vegna fyrirhugaðs flutnings 1. – 3. bekkjar áður en þessu skólaári lýkur.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur um fjölskyldustefnu, 6 fundur,15. október 2008.
Fram kom athugasemd við hversu lítið fundargerðir segja um það sem rætt er á fundi stýrihópsins.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 757. fundur, 10. október 2008.
Til kynningar.
2. Staða bæjarsjóðs 30. september 2008
Hjalti greindi frá því að þetta væru sömu upplýsingar og Samband íslenskra sveitarfélaga hafi óskað eftir í ljósi efnahagsaðstæðna í þjóðfélaginu. Hann sagði rekstur sveitarfélagsins vera í góðu jafnvægi.
3. Viðræður við verktaka í skólaakstri vegna áætlana um breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja viðræður um endurskoðun á samningi um skólaakstur í ljósi fyrirhugaðra breytinga á skólahaldi í Grunnskóla Hornafjarðar.
4. Ósk um umsögn á endurútgáfu leyfis til sölu veitinga á Víkinni
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu á veitingum á veitingahúsinu Víkinni.
5. Útflutningur vatns
Hjalti greindi frá viðræðum við aðila sem sýnt hefur áhuga á vatnsútflutningi frá Hornafirði. Samþykkt að viðræðum við þennan aðila verði haldið áfram miðað við þær forsendur sem kynntar voru á fundinum.
6. Fækkun presta í Austur-Skaftafellssýslu
Bæjarráð tekur undir þær áhyggjur og ábendingar sem koma fram í bréfi sóknarnefndar Hofssóknar, dags. 22. sept. 2008, og andmæli við hugmyndir biskupafundar, undirritað af Gauta Árnasyni formanni sóknarnefndar Hafnarsóknar, dags. 12. október 2008. Verði af þeim hugmyndum sem fram komu á biskupafundi sem haldinn var þann 31. 07. 2008 um að leggja niður Kálfafellsprestakall og breyta jafnframt sóknarmörkum mun það skerða verulega aðgengi íbúa hinna dreifðu byggða að prestþjónustu. Einnig mun það hafa áhrif á umfang og vinnu prests í stækkuðu Bjarnanesprestakalli sem jafnframt hefur áhrif á þjónustu við sóknarbörnin. Bæjarráð hvetur því eindregið til þess að Kirkjuþing samþykki ekki þessar tillögur biskupafundar þannig að tveir prestar muni áfram starfa í Austur-Skaftafellssýslu.
7. Gjaldskrá á leiguhúsnæði sveitarfélagsins
Rætt um gjaldskrá fyrir íþróttahús á Höfn, Mánagarð, Hrollaugsstaði og Hofgarð vegna þorrablóta o.fl. skemmtana. Samþykkt að þorrablótsnefndir í sveitarfélaginu fái húsin án endurgjalds á þorrablótum og góuhófi sem haldin verða á fyrrihluta næsta árs.
8. Umsókn um lóð nr. 38 við Ægissíðu
Umsókn samþykkt.
9. Ósk um framkvæmdaleyfi til að lagfæra vegaslóða að Heinabergsjökli
Umsókn um framkvæmdaleyfi samþykkt.
10. Fundur með þingmönnum Suðurkjördæmis - áherslur vegna fjárlaga 2009
Samþykkt að leggja fyrir þingmenn skjal sem sýnir áherslur sveitarfélagsins vegna fjárlaga 2009.
11. Innsend bréf og erindi
· Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands,bréf dagsett 2. október 2008, ágóðahlutagreiðsla 2008.
Til kynningar.
· Skipulagsstofnun, bréf dags., Deiliskipulag við Víkurbraut – Knattleikjahús.
Til kynningar.
· Jöfnunarsjóður, bréf dagsett 8. október 2008, áætlun um heildargreiðslu sveitarfélaga á alm. húsaleigubótum 2009 m.v. grunnfjárhæðir bóta og áætlun um heildargreiðslur sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum 2009.
Til kynningar
· Dagur íslenskrar, tungu 16. nóvember , bréf dags, 8. október 2008.
Vísað til skólanefndar og til leik- og grunnskóla.
· Fél. opinberra starfsmanna á Suðurlandi, trúnaðarmenn Foss hjá sveitarfélaginu, bréf dags. 9. október 2008.
Til kynningar.
· Sporthöllin, bréf ódagsett, líkamsræktarátak - fyrirtækjaáskorun Sporthallarinnar.
Bæjarráð fagnar því framtaki sem bréfritarar, Sigrún og Sandra, sýna með því að opna líkamsræktarstöðina. Jafnframt er þeim óskað góðs gengis við þennan rekstur í framtíðinni.
· Stjórn Samb. ísl. sveitarfélaga, tölvubréf með samþykkt dags. 10. október 2008
Til kynningar.
· Opið bréf frá íbúa sveitarfélagsins til bæjarstjórnar, dags. 11. október 2008.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir bréfið og samþykkir að það verði tekið til umfjöllunar við fjárhagsáætlunargerð 2009. Fram kom í máli bæjarstjóra að samþykkt hafi verið lækkun á leikskólagjöldum og gjöldum fyrir lengda viðveru. Þá sé ákveðið að taka upp frístundakort 1. janúar 2009.
· Lögreglan á Höfn, hraðatakmarkandi aðgerðir, bréf dags. 12.október 2008.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· SSA – Samþykktir 42. aðalfundar SSA – hafðar sér.
Til kynningar.
· Vinnueftirlitið, tölvubréf 15. október 2008, ráðstefna vinnuverndarvikunnar 2008.
Vísað til starfsmanna.
· Samband ísl. sveitarfélaga,tilkynning um ráðstefnuna Sameining sveitarfélaga - hvað hefur áunnist, hvert stefnir?, á Sauðárkróki 23. október n.k. - tölvubréf dags. 16. október 2008.
Til kynningar.
· Skipulagsstofnun, Mat á umhverfisáhrifum - málþing, tölvubréf dags. 16. október 2008.
Vísað til starfsmanna.
12. Önnur mál
- Kynnt bréf frá verktökum við byggingu sundlaugar, ósk um verðbætur vegna hækkandi verðlags. Málinu vísað til starfsmanna og það aftur tekið fyrir á bæjarráðsfundi.
- Rætt um byggingu reiðskemmu.
- Reynir lagði til að fram fari ruslatínsla í bænum við fyrsta tækifæri.
Fundi slitið kl. 18:10


