Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 440
440. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 17. nóvember 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 187. fundur 11. nóvember 2008.
Bæjarráð óskar eftir því að fá félagsmálastjóra inn á næsta fund bæjarráðs til að ræða hvort breytingar hafa orðið í málaflokknum vegna efnahagsástandsins.
Fundargerð samþykkt
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 4. fundur 12. nóvember 2008.
Mikil umræða skapaðist um reglur um tómstundakort, bæjarráð ákvað að taka reglurnar til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 82. fundur 12. nóvember 2008.
Bæjarráð samþykkir tillögur umhverfisnefndar um að bjóða heimilum upp á mismunandi stærð sorpíláta samhliða breytingum á sorpeyðingargjöldum.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 11. fundur 5. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs, 43. fundur 4. nóvember 2008.
Ásta greindi frá stöðu sjóðsins.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um endurskoðun aðalskipulags, 2. fundur 6. nóvember 2008.
Rætt var um kortagrunn sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 8. fundur, 11. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt.
2. Leiguíbúðir
Gerð grein fyrir fundi bæjarstjóra með starfsmönnum Íbúðalánasjóðs.
Bæjarráð vísar málinu til starfsmanna til áframhaldandi vinnu.
3. Jarðhitaleit
Gerð grein fyrir fundi bæjarstjóra með forstjóra RARIK þar sem fjallað var um jarðhitaleit í Hoffelli.
4. Tilboð í hreinsun og myndun lagna
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Dælingu á grundvelli þjónustusamnings.
5. Innsend bréf og erindi
· Jöfnunarsjóður, bréf dags. 5. nóvember 2008, aukaframlag 2008.
Til kynningar
· Jöfnunarsjóður, bréf dags. 6. nóvember 2008, tekjujöfnunarframlag 2008.
Til kynningar
· Landsnet, tölvubréf dags. 7. nóvember 2008, upplýsingafundur um flutningskerfi raforku, 20. nóvember n.k.
Til kynningar
· SSA, bréf dags. 9. nóvember 2008, skýrslur Mannvits og Þróunarfélags. Austurlands um úrgangsmál á Austurlandi
Vísað til Umhverfisnefndar.
Til kynningar
· Skipulagsstofnun, minnisblað og bréf send VSÓ um yfirlestur á drögum um matsskýrslu v. hringvegar um Hornafjörð.
Vísað til Byggingar- og skipulagsnefndar.
Önnur mál
- Guðrún Júlía Jónsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið til að ræða tilmæli frá heilbrigðisráðuneytinu „um lækkun útgjalda sem nemi a.m.k. 10% af veltu miðað við fjárlagafrumvarpið 2009” eins og segir í tilkynningu ráðuneytisins. Guðrúnu falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
- (Ásta vék af fundi undir þessum lið annarra mála.) Rætt um verkfræðiþjónustu fyrir sveitarfélagið. Starfsmönnum falið að leggja fram tillögu um verkfræðiþjónustu.
Fundi slitið kl. 18:34


