Fundargerð bæjarráðs 444
444. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 15. desember 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
Óskað eftir að fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar, nr. 101 fundar þann 15. desember 2008. Var það samþykkt.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 100. fundur, 10. desember 2008 og 101. fundur 15. desember 2008.
Bæjarráð tekur undir bókun byggingar- og skipulagsnefndar um aðalskipulagsbreytingu vegna vegar yfir Hornafjarðarfljót á 101. fundi nefndarinnar og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fundargerðir samþykktar.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 109. fundur, 8. desember 2008.
Reynir gerði grein fyrir dýpkun í höfninni og að ekki þurfi að koma til sprenginga eins og fram kemur í fundargerð hafnarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd, 83. fundur, 8. desember 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum, 21. fundur 26. nóvember, 22. fundur 1. desember, 23. fundur 3. desember, 24. fundur 5. desember og 25. fundur 10. desember 2008
Fundargerðir samþykktar.
· Starfshópur um skólamál, 12. fundur, 9. desember 2008.
Í framhaldi af fyrirspurn Björns Inga var rætt um aðstöðu eldri nemenda grunnskólans til að neyta hádegisverðar frá og með næsta skólaári, sbr. fundargerð. Samþykkt að skólamatur fyrir Grunnskóla Hornafjarðar verði boðinn út í janúar nk. og starfsmönnum falið að vinna að málinu.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2009
Hjalti fór yfir kynningu á fjárhagsáætlun 2009 og þróun lykilstærða sveitarfélagsins.
Gerð grein fyrir ákvörðun ríkisstjórnar um að heimila sveitarfélögum að hækka útsvar. Kom fram að framlög úr Jöfnunarsjóði miðist vil fullnýtingu útsvarstofnsins. Bæjarráð er sammála um að enginn annar kostur sé því í stöðunni en að hækka útsvar til að framlög úr Jöfnunarsjóði skerðist ekki. Bæjarráð telur að með þessum auknu álögum og um leið auknum tekjum í sveitarsjóðs eigi að skoða hvernig hægt sé að koma til móts við íbúa um lækkun þjónustugjalda og/eða gjaldskrá með einhverjum hætti. Starfsmönnum falið að leggja fram tillögur um lækkun þjónustugjalda og/eða gjaldskráa. Fjárhagsáætlun 2009 vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Björn Ingi sagist áskilja sér rétt til breytingatillagna á bæjarstjórnarfundi.
Bæjarráð samþykkir að borgarafundur verði á milli 1. og 2. umræðu um fjárhagsáætlun 2009.
3. Þórbergssetur
Rætt um stöðu setursins og aðkomu sveitarfélagsins að því. Samþykkt að vísa umsókn Þórbergsseturs til menningarmálanefndar og einnig bent á atvinnu- og rannsóknasjóð.
4. Ríki Vatnajökuls
Hjalti gerði grein fyrir fundi með framkvæmdastjóra og forsvarsmönnum Ríkis Vatnajökuls. Samningurinn rennur út eftir eitt og hálft ár. Bæjarráð ítrekar þau markmið sem sett voru með stofnun félagsins og að aðkoma sveitarfélagsins byggi á þeim. Markmiðið var, skv. samningnum, að byggja upp ferðamennsku í Sveitarfélaginu Hornafirði á jaðartímum, að þróa og markaðssetja vandaðar vörur á jaðartímum ferðaþjónustu - haust, vor og vetur. Samkvæmt samningum var gert ráð fyrir vinnu við vöruþróun, fræðslu, gæðamál og framleiðslu kynningar- og auglýsingarefnis fyrir innlenda og erlenda ferðasöluaðila og fjölmiðla.
5. Lóðarumsókn – Hafnarbraut 36
Umsóknin samþykkt.
6. Skýrsla nefndar um stefnu í húsnæðismálum stofnana sveitarfélagsins
Hjalti lýsti yfir ánægju með skýrslu nefndarinnar og þakkaði þeim sem að henni unnu fyrir góða vinnu. Bæjarráðsmenn voru því sammála að skýrslan verði til áframhaldandi umfjöllunar í bæjarráði. Björn Ingi sagðist sakna þess að ekki væri minnst á húsnæði Menningarmiðstöðvar, svo sem Pakkhúsið o. fl. Fannst eðlilegt að nefndin hefði einnig tekið það fyrir. Reynir benti á nýlega úttekt á húsnæðisþörf Menningarmiðstöðvar.
Undir þessum lið gerði Hjalti grein fyrir hugmyndum að kaupum á Hafnarbraut 40 fyrir félagsmiðstöð og kynnti hugmynd að samkomulagi um kaupverð. Ákvörðun um málið frestað til næsta fundar bæjarráðs.
7. Skýrsla starfshóps um breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Bæjarráðsmenn lýstu yfir ánægju með skýrslu nefndarinnar og þökkuðu þeim sem að henni unnu fyrir góða vinnu.
Bæjarráð leggur til að skýrsla starfshóps um breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar verði lögð til grundvallar áframhaldandi vinnu að fyrirhuguðum breytingum á skólanum.
Framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs ásamt öðrum viðkomandi starfsmönnum falið að vinna að breytingum í samræmi við skýrslu starfshópsins og framkomna verk- og tímaáætlun.
8. Ósk um umsagnir á útgáfu tækifærisleyfa fyrri Víkina
Umsókn samþykkt.
9. Minnispunktar eftir fund um nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót 4. desember 2008
Til kynningar.
10. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um sjúkraskrár, 170. mál, heildarlög
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
11. Ósk um styrk vegna samstarfsverkefnisins Bændur græða landið
Vísað til fjárhagsáætlunar.
12. Drög að samningi um tækniþjónustu
(Ásta vék af fundi.) Bæjarráð samþykkir framlögð drög fyrir sitt leyti.
13. Innsend bréf og erindi
· Pálína Þorsteinsdóttir og Ármann Guðmundsson, afrit bréfs til Vegagerðarinnar, dags. 28. nóvember 2008, vegna óskar um uppsetningu blikkljósa við Virkisárbrú.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið bréfritara.
· Yrkjusjóður,ódagsett bréf til sveitarfélaga, kynning á starfi sjóðsins, óskir og ábendingar.
Vísað til skólanefndar.
· ÍSÍ, bréf dags. 1. desember 2008, viðburðir á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ.
Til kynningar.
· Vaxtarsamningur Austurlands, tölvubréf dags.3. desember 2008, aðalfundur á Höfn 17. desember 2008.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, ráðstöfun á fjármagni vegna tímabundins samdráttar í þorskafla 2008.
Hjalti lagði til að bæjarráð móti stefnu um ráðstöfun þessa fjár. Starfsmönnum falið að vinna tillögur þar að lútandi.
14. Önnur mál
· Hjalti gerði grein fyrir fundi með landeigendum í Nesjum um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
· Björn Ingi spurðist fyrir um lok leigu á steypustöðinni, hvort hún rynni ekki út um áramót. Haukur sagði leigutímann renna út 1. febrúar 2009.
· Hjalti gerði grein fyrir tillögu að breytingum á orðalagi á drögum að samningi um samstarf um sölu á vatni sem tekinn verður til afgreiðslu í bæjarstjórn þann 18. desember nk.
· Björn Ingi óskaði eftir upplýsingum um það magn sem fer í gegnum grenndargámastöð við Miðbæ.
· Reynir greindi frá stjórnarfundi SASS 12. des.
· Skil fjárhagsáætlunar 2009 – Samgönguráðuneytið. Bæjarráð samþykkir að sótt verði um undanþágu fyrir skil á fjárhagsáætlun 2009.
Fundi slitið kl. 19:10


