Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 445
445. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 23. desember 2008 kl. 10:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 101. fundur, 15. desember og 102. fundur 18. desember 2008.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 98. fundur 17. desember 2008 og Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs, 45. fundur 17. desember 2008.
Tillaga um könnun á þörf fyrir hentugu húsnæði fyrir eldri íbúa næstu 10-15 árin sem borin var fram undir 4. tl. fundargerðarinnar samþykkt. Starfsmönnum falið að láta framkvæma könnunina.
Bæjarráð tekur undir með HÖR um að læknabústaður á Sunnubraut verði seldur. Starfsmönnum falið að koma húsinu í sölumeðferð.
Björn Ingi spurðist fyrir um leigusamning á milli HSSA og Fasteigna ríkissjóðs. Bæjarráð óskar eftir að fá að sjá umræddan samning.
Fundargerðir samþykktar
· Menningar- tómstundarnefnd, 5. fundur 10. desember 2008.
Reynir ræddi um húsnæði undir málverk Svavars Guðnasonar.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki, 52. fundur 27. nóvember 2008 og 53.fundur, 17. desember 2008.
Fundargerðir samþykktar.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 759. fundur, 12. desember 2008.
Undir 29. lið lagði Reynir áherslu á að sótt verði um styrk til Safnaráðs vegna kaupa á þjónustuhúsi fyrir söfnin.
Fundargerð samþykkt
2. Uppsalir
Hjalti gerði grein fyrir innsendum erindum, samtölum við aðila og fundum sem átt hafa sér stað um skráningu jarðarinnar Uppsala í Fasteignamati Ríkisins. Bæjarráð Hornafjarðar telur að fyrirliggjandi gögn um upphaflega skiptingu Uppsalajarðarinnar og landamerki við skipti jarðarinnar séu óljós og ekki óumdeild. Bæjarráð mun því ekki beita sér fyrir breytingu á Fasteignamati ríkisins fyrr en að liggi fyrir skipting á Uppsalajörðinni. Verður það gert annað hvort með samkomulagi á milli allra landeigenda eða niðurstöðu skiptanefndar sem Sýslumaðurinn á Höfn hefur skipað.
3. Ósk um niðurfellingu heilbrigðisgjalds
Samþykkt.
4. Greiðsla vegna náms utan lögheimilissveitarfélags
Bæjarráð er sammála um að hafna erindinu og vísar í fyrri ákvarðanir um sambærileg mál.
5. Leigufélag – tilboð vegna útboðsgagna
Haukur Ingi Einarsson fór yfir málið. Samþykkt að ganga til samninga við ASK arkitekta
6. Ákvörðun um útsvarsprósentu
Samþykkt að útsvar verði 13,28%.
7. Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna kirkjugarðsstæðis við Réttarkletta
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar, umhverfisnefndar og að óskað eftir umsögn sóknarnefndar.
Björn Ingi ræddi um lóð undir gagnaver og skoða þurfi svæðið allt með framtíðarnýtingu í huga.
8. Ósk Bólholts ehf um yfirtöku á þjónustusamningi vegna holræsahreinsunar
Samþykkt.
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vegslóða úr Hoffellsdal
Samþykkt.
10. Húsnæði félagsmiðstöðvar
Bæjarstjóra falið að ljúka samningum um kaup á Hafnarbraut 40 miðað við fyrirliggjandi samkomulag.
11. Samningur við verktaka í skólaakstri
Hjalti gerði grein fyrir málinu og gagntilboði verktaka. Bæjarstjóra falið að ljúka samningum við verktaka. Ef ekki verði hægt að loka samningum þann 29. desember að þá verði honum sagt upp.
12. Samningur milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Rolf Johansen & Co. um átöppun á vatni og sölu innanlands og utan.
Rætt um landið sem sveitarfélagið hefur til umráða umhverfis Grjótbrú. Haukur Ingi kynnti uppdrátt af svæðinu. Rætt um ýmsa þætti samningsins, t.d. hvað skyldur sveitarfélagsins varðar og verð.
Bæjarstjóra falið að skrifa undir samninginn.
13. Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis f. dansleik Nemendafélags. FAS í Sindrabæ 28. desember 2008
Engar athugasemdir.
14. Innsend bréf og erindi
· ÍSÍ, bréf dags. 5. desember s.l, skýrsla vinnuhóps um áhrif ástands efnahagsmála á íþróttahreyfinguna.
Vísað til skólanefndar
· Skógrækt ríkisins, bréf dags. 10. desember 2008, leiðbeiningar um skógrækt í skipulagsáætlunum
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og endurskoðun á aðalskipulagi.
· Skipulagsstofnun, bréf dags. 10. desember 2008, á stöðu byggingareftirlits á Íslandi. http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/Attachment/Byggingareftirlitið-skýrsla/$file/Byggingareftirlitið_skýrsla.pdf
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar
· Samtök sveitarfélag á Suðurlandi, bréf dags. 15. desember 2008, rafrænar fundargerðir og fundargerð 420. fundar stjórnar SASS.
Reynir ræddi um starfsendurhæfingu, efnahagsmálin og um ráðgjafaþjónustu um fjármál heimilanna.
· Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 15. desember 2008, leiðbeiningar um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
Vísað til félagsmálastjóra.
· SSA og Þróunarfélag Austurlands, bréf dags. 15. desember 2008, stefnumótunarvinna um málefni nýrra íbúa.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Safnaráð, bréf dags. 15. desember 2008, rekstrarfyrirkomulag og skipulag safna.
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
15. Önnur mál
Samband ísl. sveitarfélaga,tölvubréf 19. desember 2008, minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana. Björn Ingi ræddi um greiðslur úr jöfnunarsjóði vegna húsaleigubóta.
Næsti fundur í bæjaráði verður 12. janúar 2009.
Fundi slitið kl. 12.10


