Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 447
447. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 19. janúar 2009 kl. 12.00 Mætt voru: Reynir Arnarson, varaformaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
- Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 45. fundur 13. janúar 2009.
Bæjarráð samþykkir að setja 6 millj. í atvinnu- og rannsóknasjóðs af þeim 12 millj. sem komu frá ríkissjóði vegna mótvægisaðgerða.
Fundargerð samþykkt. - Hafnarstjórn Hornafjarðar, 110. fundur 14. janúar 2009
Fundargerð samþykkt. - Félagsmálaráð Hornafjarðar,190. fundur. 13. janúar 2009.
Fundargerð samþykkt. - Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs10. fundur 14. janúar 2009.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna á fundi yfirstjórnar þjóðgarðsins hugmynd um að nýta húsnæði Jöklasýningar í Vöruhúsi jafnframt sem gestastofu næstu ár og fá fjármagn til þess verkefnis. Björn Ingi leggur áherslu á að okkar svæði þjóðgarðsins fái að njóta þess fjárhagslega ávinnings sem hlýst af því að fara þessa leið svo sem með hraðari uppbyggingu minni þjónustustöðva. Var undir það tekið.
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2009
Ásta fór yfir fjárhagsáætlun 2009 og afhenti ramma sem forstöðumenn hafa útfyllt.
Ástu falið að útbúa fjárhagsáætlun til síðari umræðu í bæjarstjórn og 3ja ára áætlun til fyrri umræðu.
Undir þessum lið var tekinn fyrir afsláttur á fasteignaskatti vegna gjalda árið 2009.
Bæjarráð samþykkir að reglur um afslátt á fasteignaskatti gildi áfram með þeim breytingum á milli ára að tekjumörk einstaklinga hækki um 50 þús. og tekjumörk hjóna um 100 þús. frá því sem þau voru árið 2008.
3. Skólamáltíðir
Bæjarráð samþykkir að skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar verði boðnar út í samræmi við þau útboðsgögn sem kynnt voru á fundinum.
4. Styrkir bæjarráðs 2009
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi styrkumsóknir:
Björgunarsveitin Kári Kr. 200 þús.
Björgunarfélag Hornafjarðar Kr. 200 þús.
Björgunarskipið Ingibjörg Kr. 200 þús.
Félagsstarf eldir borgara í Öræfum Kr. 100 þús.
Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu Kr. 100 þús.
Hafnarkirkja (hljóð og útsendingarkerfi) Kr. 300 þús.
Landgræðsla ríkisins (bændur græða landið) Kr. 70 þús.
Fornleifafræðistofan Kr. 300 þús.
Legóhópurinn Kr. 250 þús.
Félag eldri Hornfirðinga Kr. 500 þús.
5. Ósk um umsögn á endurnýjun á veitingaleyfi
- Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 29. desember 2008, vegna Jökulsárlóns ehf.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að leyfið sé gefið út.
6. Ósk um umsagnir á útgáfu tækifærisleyfa
- Sýslumaðurinn á Höfn bréf dags. 7. janúar 2009, þorrablótsnefnd í Suðursveit.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að leyfið sé gefið út.
- Sýslumaðurinn á Höfn bréf dags. 8. janúar 2009, þorrablótsnefnd í Nesjum og Lóni.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að leyfið sé gefið út.
- Sýslumaðurinn á Höfn bréf dags. 9. janúar 2009, þorrablótsnefnd á Höfn.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að leyfið sé gefið út.
7. Lóðarumsókn
Bæjarráð samþykkir fram lagða lóðarumsókn, dags. 22. des. 2008.
8. Leigufélag
Bæjarráð fór yfir teikningar og stöðu málsins.
9. Innsend erindi
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 19. desember 2008, Íþróttavakning framhaldsskólanna, ósk um að framhaldsskólanemar fái frítt í sundlaug 19.-26. janúar.
Bæjarráð samþykkir umsóknina.
· Félag tónlistarskólakennara, bréf dags. 6. janúar 2008, ályktun um stöðu tónlistarskólanna í landinu.
Til kynningar.
· SASS, afrit bréfs dags. 12. janúar sl. til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, afstaða SASS til sameiningar heilbrigðisstofnana.
Til kynningar.
· Skipulagsstofnun, svarbréf 9. janúar sl. , vegur yfir Hornafjarðarfljót.
Vísað til starfsmanna.
· Vegagerðin, bréf dags. 7. janúar 2008, vegahald þjóðvega í þéttbýli á Höfn.
Bæjarráð samþykkir fram komna tillögu Vegagerðarinnar.
10. Önnur mál
Fundi slitið kl. 14:15


