Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 454
454. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 9. mars 2009 kl. 16.00
Mættir voru: Árni Þorvaldsson, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 100. fundur, 26. febrúar 2009.
Vegna þess sem fram kemur í fundargerðinni um að ekki sé greitt fyrir hjúkrunarrými að fullu vill bæjarráð minna á samkomulag þess efnis milli ríkis og sveitarfélags að greiða eigi fyrir fulla nýtingu hjúkrunarrýma.
Halldóra spurði um hvort ekki ætti að fjalla um þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál á þessum fundi. Samþykkt að taka hann til umræðu á næsta fundi bæjarráðs.
Fram kom að heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, mun funda með bæjarstjórn og starfsmönnum nk. miðvikudag kl. 16:00.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs, 46. fundur 26. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 192. fundur, 24. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 86. fundur, 26. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 18. fundur, 4. mars 2009.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 761. fundur, 27. febrúar 2009.
Til kynningar.
2. Fráveitumál
Þessum lið frestað vegna þess að gestir sem koma áttu á fundinn gátu ekki mætt.
3. Íbúðir í eigu sveitarfélagsins
Farið yfir málið og þá stöðu sem það er í. Voru menn sammála um að gefa sér nægan tíma til að vinna að þessu máli.
4. Skólamáltíðir – mat á tilboðum
(Árni vék af fundi undir þessum lið og í hans stað tók sæti Guðrún Ingimundardóttir. Ásta Guðmundsdóttir vék einnig af fundi undir þessum lið.)
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Veitingastaðinn Víkina.
5. Staða bæjarsjóðs 31. janúar 2009 – gögn sér
Farið yfir stöðuna eftir fyrsta mánuð ársins og er hún í takt við fjárhagsáætlun 2009.
6. Innsend erindi
- Karl Ómar Jónsson og Sigurmundur K. Albertsson, bréf dags. 24. febrúar 2009, gjöf listaverka eftir Svavar Guðnason.
Bæjarráð fagnar þessari myndarlegu gjöf á listaverkum Svavars Guðnasonar, samtals um 160 verk. Forseta bæjarstjórnar falið að svara erindinu með þökkum fyrir gjöfina. Samþykkt að vísa erindinu til menningar- og tómstundanefndar.
· Forsætisráðuneytið, bréf dags. 2. mars 2009, nefnd til að gera úttekt á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins.
Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, tölvubréf bréf dags. 4. mars 2009, boðun aukafundar í fulltrúaráði.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Þórður Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, mætti á fundinn undir þessum lið. Hjalti greindi frá ferðum hans og Þórðar í dag, allt frá Höfn að Skaftafelli. Rætt var um áform sem tengjast ferðaþjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði. Taldi Þórður að mesta gerjunin, af þeim svæðum sem tilheyra þjóðgarðinum, væri hér á þessu svæði. Rætt var um stöðuna í jarðhitaleit í Skaftafelli. Bent á að vinna við aðalskipulag sveitarfélagsins þurfi að vera í takt við skipulag og nýtingu þjóðgarðsins. Fjallað um þær hugmyndir sem eru uppi um byggingu gestastofa í tengslum við þjóðgarðinn og hvaða stefna verði tekin í uppbyggingu þeirra. Halldóra spurðist fyrir um fjölda stöðugilda við þjóðgarðinn og hvernig þau skiptast. Fram kom að þau eru 8,5 og af þeim eru á 3 suðursvæði þjóðgarðsins.
· Rædd útboðsmál vegna breytinga á Grunnskóla Hornafjarðar.
Fundi slitið kl.18:00


