Fundargerð Bæjarráðs 223
223. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, miðvikudaginn. 24. september 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Skólanefnd Hornafjarðar 53. fundur 17. september 2003.
Fundargerð samþykkt.
2. Jarðgöng um Almannaskarð
Helgi Már fór yfir fram lögð gögn frá Skipulagsstofnun dags. 5. sept. 2003 ásamt fylgigögnum. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er 700 milljónir.
Í bréfinu er í samræmi við 6. gr laga nr 106/2000 óskað álits bæjarstjórnar á því hvort framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 3. viðauka í framangreindum lögum.
Eyjólfur spurðist fyrir um reglur varðandi námutöku. Hann spurði einnig hvort deiliskipulag hafi verið gert eða muni verða gert fyrir Friðsældina. Helgi sagði fyrirhugaða námatöku ekki þurfa að fara í mat á umhverfisáhrifum þar sem umfang efnistöku á hverju námasvæði er innan viðmiðunarmarka. Helgi sagði verið að vinna reglur um efnistöku úr Friðsældinni.
Eftir skoðun á fyrirliggjandi gögnum telur bæjarráð ofangreinda framkvæmd ekki háða mati á umhverfisáhrifum.
Eyjólfur setur fyrirvara við efnistöku úr námu nr.3 og að fara þurfi yfir efnistöku úr námu nr. 1 þar sem hún sé ekki í samræmi við gildandi aðalskipulags.
3. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar dags. 12. september 2003
Í bréfinu kemur fram að boðað er til fundar um uppbyggingu Sindrabæjar miðviku-daginn 1. október nk. kl. 20:00 í Sindrabæ.
Til kynningar.
• Bréf um Málþing rektors Háskóla Íslands, haldið í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, sem verður 25. september nk.
Til kynningar.
4. Önnur mál
Stefán kynnti tilboð fyrirtækisins Rannsóknir og greining sem býður sveitarfélögum á Austurlandi úrvinnslu á könnunum sem lúta að högum og neysluvenjum nemenda í efstu bekkjum grunnskóla. Kjarni þessara kannana snýr að vímuefnanotkun ungmenna.
Bæjarstjóri kynnti erindi frá Sigurði Ragnarssyni varðandi æviskráningu Austur - Skaftafellinga.
Fundi slitið kl. 12:00


