Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 484
484. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 16. nóvember 2009 kl.16:15.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson, formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 116. fundur , 11. nóvember 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd, 15. fundur, 4. nóvember 2009.
Undir þessum lið var fjallað um mál sem komu til umræðu á fundi menningar- og tómstundanefndar með ungmennaráði sem sat hluta fundarins. Björn Ingi gerði að umtalsefni 4. lið á dagskrá nefndarinnar, beiðni NOVA um fjarskiptaloftnet á gamla vatnstanknum. Einnig rætt um leigutekjur af aðstöðu sem fyrirtæki hafa á tanknum og meðferð þeirra tekna í áætlunum Menningarmiðstöðvar. Samþykkt að starfsmenn fari yfir framangreindar leigutekjur og geri bæjarráði grein fyrir meðferð þess fjár.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 88. fundur, 3. nóvember 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, 87. fundur, 4. nóvember 2009.
Til kynningar.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 768. fundur, 30. október 2009.
Til kynningar.
· Fundargerð fundar um sjávarfallavirkjanir, 23.október 2009.
Til kynningar.
2. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um persónukjör – gögn hafa verið send út í tölvupósti
Bæjarráð samþykkir að vísa vinnu við umsögn til bæjarstjóra.
3. Umsókn um stofnun fasteignar í fasteignaskrá
Bæjarráð samþykkir stofnun fasteignar í fasteignaskrá, sbr. meðfylgjandi gögn.
4. Ósk um umsögn á landskiptum
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við skipti á jörðinni Fornustekkum, sbr. meðfylgjandi gögn.
5. Stefna Nýheima
Bæjarráð fagnar því að sett sé fram formleg stefna um Nýheima og gerir ekki efnislegar athugasemdir við hana. Aðkoma sveitarfélagsins á hverjum tíma ræðst af fjárhagsáætlun hvers árs. Einnig fagnar bæjarráð umhverfisstefnu Nýheima og telur hana mjög í anda þess sem unnið er að í þessum málflokki á vegum sveitarfélagsins.
6. Átak gegn einelti, ósk um styrk
Erindinu vísað til skólanefndar til umfjöllunar.
7. Leiga á Hafnarbraut 52 yfir vetrarmánuðina
Bæjarráð samþykkir leigu á Hafnarbraut 52 yfir vetrarmánuðina. Bæjarráð leggur áherslu á að fari fram önnur starfsemi en um er sótt þurfi að sækja um leyfi til þess hverju sinni. Leigugjald fyrir húsið sé grundvallað á þeim kostnaði sem fellur á húsið yfir vetrarmánuðina. Starfsmönnum falið að ganga frá málinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
8. Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi við Hestamannafélagið Hornfirðing og Sparisjóð Vestmannaeyja um aðkomu sveitarfélagsins að því að ljúka byggingu reiðskemmu félagsins sem nú er risin að hluta til. Til grundvallar eru lögð drög að samkomulagi sem bæjarstjóri kynnti á fundinum.
9. Gjaldskrá fyrir sorphirðu 2010
Bæjarráð samþykkir að vísa fram lagðri tillögu að gjaldskrá fyrir sorphirðu 2010.
10. Skipting stofnbúnaðarramma 2009
Bæjarráð samþykkir að skipta fé til stofnbúnaðarkaupa 2009 í samræmi við tillögur sem kynntar voru í útsendum gögnum.
11. Drög að útboðsgögnum vegna gervigrasvallar
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs að ganga frá útboðsgögnum vegna gervigrasvallar.
12. Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis fyrir Árnanes
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis fyrir Gistiheimilið Árnanes.
13. Innsend erindi
· Sýslumaðurinn í Reykjavík, bréf dags. 4. nóvember 2009, tilkynning um erfðafjárskatt.
Samþykkt að erfðafjárskattur verði greiddur af liðnum óráðstafað, kr. 439.564.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 5. nóvember 2009, tilkynning um niðurskurð framlaga til endurgreiðslu vegna refaveiða til sveitarfélaga.
Bæjarráð mótmælir niðurskurði á endurgreiðslum vegna refaveiða harðlega. Jafnframt er þess krafist að Umhverfisstofnun greiði allan kostnað við minkaveiðar.
14. Önnur mál
· Komið hafa fram óskir um að næsti bæjarstjórnarfundur verði haldinn 10. desember. Lagt til að borgarafundur verði í Holti 26. nóvember og borgarafundur á Höfn 3. desember. Bæjarráð samþykkir dagsetningar þessara funda.
Fundi slitið kl. 18:10


