Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 224
224. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 02. október 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 8. fundur 29. september 2003.
Fram kom ánægja með starfsemi í Frumkvöðlasetri Austurlands.
Fundargerð samþykkt.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 98. fundur 23. september 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð 44. fundur 24. september 2003.
Fram komu áhyggjur vegna stöðu í læknamálum. Allra leiða er leitað til að ráða lækni í stað þess sem sagt hefur upp, sem og í aðrar lausar læknastöður við HSSA.
Fundargerð samþykkt.
• Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 53. fundur 22. september 2003
Fram kom að Gunnar Ingi Valgeirsson verður með kvikmyndasýningar í Sindrabæ a.m.k. næstu þrjá mánuði. Rætt um forvarnamál og nauðsyn á stuðningi við þau mál.
Fundargerð samþykkt.
2. Átta mánaða uppgjör bæjarsjóðs
• Gögn send út síðar
Ásta fór yfir fyrirliggjandi drög miðað við stöðu 31. ágúst sl. Heildarútgjöld A-hluta sveitarsjóðs eru um 475.000.000.- eða um 69% af fjárhagsáætlun ársins.
3. Tryggingar sveitarfélagsins
Tryggingar sveitarfélagsins hjá Vátrygginngafélagi Íslands eru bundnar til ársloka 2004. Bæjarráð samþykkir að ganga að tilboði VÍS um tryggingar til ársloka 2005. Fyrir mitt ár 2005 verður leitað tilboða í tryggingar fyrir sveitarfélagið hjá öllum þeim tryggingaraðilum sem umboðsmenn hafa í sveitarfélaginu.
4. Sigurður Ragnarsson v. útgáfu á Æviskrám Austur – Skaftfellinga
Rætt var um handrit að æviskrám Austur – Skaftfellinga sem Sigurður Ragnarsson hefur unnið. Um er að ræða mjög umfangsmikið verk, allt að 2100 bls. og ljóst að útgáfa verksins verður kostnaðar- og áhættusöm. Því sér bæjarráð Hornafjarðar ekki fært að taka þátt í útgáfu verksins.
5. Reglugerð nr. 596, 8. ágúst 2003 um úthlutun á 1.500 þorskígildislestum til stuðnings sjávarbyggðum
Fulltrúar í bæjarráði voru sammála um að komi hluti ofangreindra veiðiheimilda í hlut sveitarfélagsins verði farið að tillögum sjávarútvegsráðuneytisins um skiptingu þeirra milli einstakra fiskiskipa.
6. Samningur við Orkuverið ehf. dags. 13. maí 2002
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun:
Í 8. gr. ofangreinds samnings segir: „Samningur þessi tekur gildi við undirskrift, 13. maí 2002 og gildir til 13. maí 2006. Eftir 31. maí 2003 er báðum aðilum heimilt að segja samningnum upp með eins árs fyrirvara.”
Þegar samningurinn var gerður stefndi í lokun einu líkamsræktarstöðvarinnar í sveitarfélaginu. Til að fyrirbyggja að svo færi vildi sveitarfélagið leggja sitt af mörkunum sem leiddi til ofangreinds samnings við Orkuverið ehf.
Í ljósi breyttra aðstæðna með tilkomu nýrrar líkamsræktarstöðvar á Höfn telur sveitarfélagið ekki lengur stætt á því að styðja við einn rekstraraðila á samkeppnismarkaði og skekkja þannig samkeppnisaðstöðu.
Niðurstaðan er því sú að segja samningnum upp frá og með næstu mánaðamótunum með samningsbundnum eins árs fyrirvara, sbr. 8. gr. ofangreinds samnings.
7. Afskriftir vegna samnings við Mál og mynd um sölu Sögu Hafnar
Ásta greindi frá því að vegna gjaldþrots útgáfufyrirtækisins, sem samið var við um dreifingu og sölu á Sögu Hafnar, þurfi að afskrifa kr. 1.240.888. Bæjarráð sammála um að afskrifa kröfuna.
8. Umsókn til Íbúðarlánasjóðs um lánsheimildir til viðbótarlána
Ásta fór fram á heimild frá bæjarráði til að sækja um viðbótar lánsheimild til viðbótarlána að upphæð 10 milljónir vegna yfirstandandi árs og 30 milljónir vegna næsta árs. Viðbótarkostnaður bæjarsjóðs verði lánsheimildin fullnýtt í ár er 250 þúsund og kostnaður á næsta ári 1,5 milljón.
Bæjarráð heimilar ofangreindar umsóknir.
9. Frágangur Hafnarbrautar frá Víkurbraut að Litlubrú
• Gögn afhent á fundinum
Helgi fór yfir fyrirliggjandi gögn, frumdrög að breytingum á hluta Hafnarbrautar. Gert er ráð fyrir vistvænni götu þar sem dregið verður mjög úr umferðarhraða og áhersla lögð á bætta aðstöðu fyrir gangandi vegfarendur. Frumkostnaðaráætlun fyrir verkið í heild gerir ráð fyrir að það kosti 16 - 20 milljón krónur. Reynir lagði til að svæðið verði stækkað út undir Grímstaðarhæð auk umhverfis Miðbæjar og Nýheima. Tækni- og umhverfissviði falið að vinna að framtíðarskipulagi umrædds svæðis. Samþykkt að fresta frágangi Hafnarbrautar.
10. Ósk um aukafjárveitingu
• Bréf skólastjóra Nesjaskóla dags. 30. september 2003.
Bæjarráð samþykkir að veita Nesjaskóla aukafjárveitingu að upphæð kr. 670.000 til kaupa á nýrri ljósritunarvél. Framlag til stofnbúnaðarkaupa árið 2004 lækkar sem því nemur.
11. Ósk um viðræður um gerð langtímasamnings um hafnargjöld
• Bréf Skinneyjar-Þinganess hf. dags. 19. september 2003.
Erindinu vísað til Hafnarstjórnar.
12. Laun áheyrnarfulltrúa í skólanefnd
• Bréf Eiríks Hanssonar trúnaðarmanns í Hafnarskóla, dags. 24. september 2003.
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að greiða kennurum sem sitja skólanefndarfundi sem áheyrnarfullrtúar kr. 2.500 fyrir hvern setinn fund. Greitt verður frá byrjun yfirstandandi skólaárs.
13. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Soffíu Lárusdóttur dags. 22. september 2003 v/kynningarfundar um Evrópuár fatlaðra.
• Bréf Umhverfisstofnunar dags. 23. september 2003 v/grjótnáms við Virkisjökul.
• Bréf Ragnars Franks Kristjánssonar dags. 9. september 2003 v/grjótnáms.
Bæjarráð tekur undir bréf og álit Umhverfisstofnunar og Ragnars Frank Kristjánssonar.
14. Önnur mál
Stefán greindi frá tillögu um að keyptur verði á rekstrarleigu bíll fyrir málefni fatlaðra. Gert er ráð fyrir að mánaðarleg greiðsla verði um 24.000 kr. á mánuði. Núverandi bifreið verði seld en hún er skemmd eftir umferðaróhapp. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þessa fyrirætlan en leggur áherslu á að málaflokkurinn haldi sig innan fjárhagsramma.
Kynnt var bréf (tölvupóstur) frá Birgi Árnasyni og Svöfu Mjöll Jónasar. vegna líkamsræktarstöðvar að Álaugarvegi 7.
Fundi slitið kl. 12:20


