Fundargerð bæjarráðs 497
497. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 22. mars 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Afskriftir viðskiptakrafna
Fjármálastjóri kynnti tillögu að afskriftum á skuldum sem ekki hefur náðst að innheimta með aðstoð lögfræðings: Skuld við bæjarsjóð kr. 471.895 og hafnarsjóð 194.308,-
Samtals kr. 666.203.-. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um afskrift.
2. Ávöxtun á bankainneignum sveitarfélagsins
Fjármálastjóri leggur til að gerður verði innlánasamningur við Fjárstýringu Landsbankans þar sem vextir eru fastir út fyrirfram skilgreindan innlánstíma. Fjárhæðin er bundin í 1 til 3 mánuði. Vextir eru fyrirframgreiddir. Bæjarráð samþykkir að gerður verði innlánasamningur við Fjárstýringu Landsbankans, upphæð allt að 300. m.kr.
3. Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfa
· Diskótek Kvennakórs Hornafjarðar á Víkinni, 31. mars 2010, frá kl 23:00-03:00.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu framangreinds tækifærisleyfis.
· Páskaball á Víkinni, 3. apríl 2010, kl. 24:00-04:00.
Bæjarráð bendir á að samkvæmt lögum um helgidagafrið nr. 32/1997 mega dansleikir ekki standa lengur en til 3:00 aðfaranótt páskadags. Að öðru leyti gerir bæjarráð ekki athugasemd við útgáfu framangreinds tækifærisleyfis.
4. Ósk um styrk til heimafóðurverkefnisins
Vísað til atvinnumálanefndar.
5. Ályktun frá aðalfundi Kvenfélagsins Vöku 16. mars 2010 um eldhús og starfsmann í Mánagarði
Vísað til tækni og umhverfissviðs til skoðunar.
6. Innsend erindi
· Lýðheilsustöð, bréf dags. 12. febrúar 2010, Öruggt samfélag, ráðstefna og kynningarbæklingur.
Til kynningar.
· Talnakönnun, bréf dags. 19. febrúar 2010, áfallnar lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga.
Til kynningar.
· Haust, bréf dags. 13. mars 2010, umsögn um breytingar á aðalskipulagi við Lambleiksstaði.
Til kynningar.
· Sass, bréf dags. 15. mars 2010, fundur um heildarmat á starfi grunnskóla 26. mars 2010 í Tryggvaskála á Selfossi.
Vísað til starfsmanna.
· Einar Björn Einarsson, afrit bréfs til AM Praxis lögfræðiþjónustu dags. 15. mars 2010, varðar ósk um leyfi fyrir nýja starfsemi við Jökulsárlón.
Greint frá því að á morgun (23. mars) verði fundur við Jökulsárlón þar sem saman koma landeigendur, ferðaþjónustufyrirtæki á staðnum, skipulagsarkitektar og fulltrúar sveitarfélagsins til að ræða deiliskipulag við Jökulsárlón.
· Veðurstofa Íslands, tölvubréf dags. 16. mars 2010, varðar drög að lögum um grunngerð landupplýsinga.
Til kynningar.
· Sjávar- og landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 15. mars 2010, varðar samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Engin
Fundi slitið kl. 17:28


