Fundargerð bæjarráðs 499
499. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi fimmtudaginn 15. apríl 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar, 123. fundur, 7. apríl 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 19. fundur, 12. apríl 2010.
Hjalti gerði grein fyrir stöðunni við vinnu að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðar.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 773. fundur, 26. mars 2010.
Undir þessum lið var rætt um verkefnaflutning – málefni fatlaðra – sbr. 2. lið á dagskrá stjórnar sambandsins.
Til kynningar.
2. Tilboð í malbikun
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu og samstarfi við fyrirtæki á staðnum um fyrirhugaða malbikun. Fram kom að malbikunarfyrirtækið er tilbúið að koma á staðinn og hefja framkvæmdir um 10. maí nk. Verktími alls yrði 10 – 15 dagar. Bæjarráð samþykkir að götur, plön og hafnarsvæði verði malbikað í samræmi við fyrirliggjandi tillögur. Auk þess samþykkt að það malbik sem enn er óraðstafað verði sett á göngustíg á vesturströnd Hafnar. Einnig samþykkt að kanna möguleika á að malbika malarsvæði sunnan við Heppuskóla/íþróttahús. Þeim hluta sem fellur undir höfnina er vísað til ákvörðunartöku í Hafnarstjórn. Bent á að upplýsingar eru komnar á vef sveitafélagsins um málið.
3. Tilboð í viðbyggingu við Lönguhóla
(Björn Imsland sat fundinn undir 3. og 4. lið) Tvö tilboð bárust í verkið: Mikael ehf. bauð kr. 33.514.520. og Þingvað ehf. bauð kr. 29.572.700.-. Kostnaðaráætlun var kr. 26.663.999.-. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Þingvað ehf., um verkið.
4. Drög að svarbréfi vegna sýningarsals fyrir myndverk Svavars Guðnasonar
Farið yfir drög bæjarstjóra að svarbréfi og samþykkt að það fari óbreytt. Undir þessum lið var neðsta hæðin í ráðhúsi skoðuð með aðstöðu til sýningarhalds í huga. Einnig farið yfir möguleika á frekari viðhaldsverkefnum í húsinu. Nýtt yrði það fjármagn sem eyrnamerkt hefur verið viðhaldsverkefnum í ráðhúsi.
5. Byggðaáætlun - tillaga til þingsályktunar
· http://www.althingi.is/altext/138/s/pdf/0910.pdf
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að gera drög að umsögn um þingsályktunartillöguna.
6. Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis til reksturs ferðaþjónustu að Litla-Hofi
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun rekstrarleyfis til reksturs ferðaþjónustu að Litla-Hofi.
7. Lagning vegslóða vegna atvinnuuppbyggingar við Fláajökul
Hjalti gerði grein fyrir málinu og samskipti við landeigendur á umræddu svæði. Fram kom að fyrirhugað er að vera með ferðaþjónustu við og á Fláajökli. Til þess þurfi að leggja vegslóða að jöklinum.
8. Tilnefning fulltrúa í starfshóp um mat á sameiningarkostum sveitarfélaga
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Árna Rúnar Þorvaldsson sem fulltrúa sinn í starfshópi um mat á sameiningarkostum sveitarfélaga.
9. Lóðarumsókn – Hagatún 16
Bæjarráð samþykkir að vísa umsókninni til meðferðar í byggingar- og skipulagsnefnd.
10. Innsend erindi
· Húsafriðunarnefnd, bréf dags. 23. mars 2010, athugasemdir vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda að Hofi í Öræfum.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Siglingastofnun, bréf dags. 26. mars 2010,svar við ósk um tilfærslu fjárheimilda vegna framkvæmda í Hornafjarðarhöfn.
Vísað til hafnarstjórnar. Lýst yfir vonbrigðum með afgreiðslu hafnaráðs og Siglingastofnunar.
· Mennta- og menningarmálaráðuneytið, bréf 29. mars 2010, skýrsla um samræmd könnunarpróf haustið 2009.
Vísað til skólanefndar.
· Stapi lífeyrissjóður, bréf dags. 7. apríl 2020, boð á aðalfund 6.maí í Skjólbrekku í Mývatnssveit.
Til kynningar.
· Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið,bréf dags. 9. apríl 2010, úrskurður ráðuneytisins í stjórnsýslumáli nr. 10/2009, Sigurgeir Jónsson gegn Sveitarfélaginu Hornafirði 6. apríl 2010.
Til kynningar.
· Stjórn Kvískerjasjóðs- og Sveitarfélagið Hornafjörður, tölvubréf dags. 9. apríl, ráðstefna Kvískerjasjóðs laugardaginn 17. apríl nk.
Til kynningar. Fram kom að ráðstefnunni hefur verið frestað.
· Mennta- og menningarmálaráðuneytið, tölvubréf dags. 9. apríl 2010, menningarþing að Hótel Loftleiðum 30. apríl nk., Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu.
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
· Safnaráð – safnasjóður/Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 12. apríl 2010, tilnefning til íslensku safnaverðlaunanna.
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
11. Önnur mál
· Hjalti greindi frá ósk um að leyft verði nýta bílastæði við Holt vegna fyrirhugaðrar ferðaþjónustu við Fláajökul. Bæjarráð samþykkir erindið.
· Hjalti greindi frá samtali við Knút Bruun vegna fyrirhugaðra byggingaráforma fyrirtækis hans, Frosts og funa, að Hofi í Öræfum. Urðu um þetta mál töluverðar umræður en það er til meðferðar í byggingar- og skipulagsnefnd.
· Ásta kynnti tilboð sem húsfélagið í Ekru, Víkurbraut 30, fékk frá Málningarþjónustunni ehf. í viðgerðir og málun utan húss. Tilboðið var tekið fyrir á fundi húsfélagsins 13. apríl sl. Fram kom að nægilegt fjármagn er í viðhaldssjóði hússins fyrir framkvæmdinni. Bæjarráð samþykkir þessa framkvæmd fyrir sitt leyti en hlutur sveitarfélagsins í Víkurbraut 30 er 29,62%. (Ásta vék af fundi.)
· Haukur fór yfir vinnu Bólholts við fráveituútrás við Leiðarhöfða. Einnig greindi hann frá vinnu við reiðskemmuna.
Fundi slitið kl. 18:10


