Fundargerð bæjarráðs 500
500. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 26. apríl 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 35. fundur, 15. apríl 2010.
Sagt frá því að nefndin muni aftur funda í kvöld, 26. apríl.
Fundargerð samþykkt.
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 58. fundur, 19. apríl 2010.
Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í 2. lið á fundi atvinnumálanefndar.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 124. fundur, 21. apríl 2010.
Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í 3. lið, breytingar á aðalskipulagi á Lambleiksstöðum á Mýrum og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn. Björn Ingi ræddi 2. lið á dagskrá nefndarinnar. Sagði mikilvægt að hlustað verði á skoðanir íbúanna hvað snertir val á kirkjugarðsstæði. Urðu um þetta mál töluverðar umræður og ræddir möguleikar á staðsetningu kirkjugarðs sem og hugsanlega aukna nýtingu á núverandi svæði.
Bæjarráð samþykkir að 7. lið og 12. lið á fundi nefndarinnar verði vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að úthluta byggingarlóðinni Hagatúni 16 til umsækjanda, sbr. 14. lið á fundi nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 123. fundur, 23. apríl 2010.
Fram kom að fyrirhugaður fyrirhleðslugarður í Sílavík er verkefni hafnarinnar.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 18. fundur, 14. apríl 2010.
Samþykkt að forseti bæjarstjórnar fari til fundar við Karl Ómar Jónsson vegna Svavarssafns.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 96. fundur, 12. apríl 2010.
Haukur Ingi greindi frá umhverfisviðurkenningum í sveitarfélaginu. Einnig greindi hann frá frekari flokkun sorps. Sagði að nú verði farið að taka á móti hörðu plasti til viðbótar við annað sem flokkað er. Lögð áhersla á kynningu á flokkun.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 20. fundur, 23. apríl 2010.
Hjalti greindi frá vinnu við verndaráætlun fyrir suðursvæðið.
2. Eldhús í Mánagarði – kostnaðaráætlun
Bæjarráð er jákvætt fyrir ákv. breytingum á eldhúsi í Mánagarði og samþykkir að vísa erindinu til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2010.
3. Fjögurra ára samgönguáætlun um hafnaframkvæmdir og sjóvarnir 2011-2014
Vísað til umsagnar í hafnarstjórn.
4. Ósk um styrk og leyfi vegna ljósalistaverks á nýja vatnstanknum
Starfsmönnum falið að óska eftir frekari upplýsingum um málið.
5. Innsend erindi
· Menningarráð Austurlands, bréf dags. 12. apríl 2010, tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund menningarráðs á Eiðum 12. maí nk.
Bæjarráð tilnefnir og Björk Pálsdóttur, Björgu Erlingsdóttur og Hermann Hansson sem fulltrúa á fundi ráðsins.
· Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 14. apríl 2010, um að takið verði tillit til athugasemda Bændasamtaka Íslands á drögum að samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Til kynningar.
· Ríkisendurskoðun, bréf dags. 16. apríl 2010, athugun á viðbrögðum við ábendingum Ríkisendurskoðunar í skýrslum hennar – varðar HSSA.
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
· Orkustofnun, tölvupóstur 20. apríl 2010, leyfi til handa Vegagerðarinnar til efnistöku við Breiðá.
Til kynningar.
· Landmælingar Íslands, tölvubréf dags. 20. apríl 2010, málþing um sameiginlegt hnitakerfi fyrir Ísland.
Til kynningar.
· Ungmennafélag Íslands, tölvubréf dags. 21. apríl 2010, bréf og ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Laugum í Sælingsdal 7.-9. apríl sl.
Vísað til ungmennaráðs og menningar- og tómstundanefndar.
6. Önnur mál
· Í reglum um leikskóla segir: „Þegar sótt er um leikskólavist fyrir barn þarf viðkomandi að vera með skráð lögheimili í sveitarfélaginu.“ Rætt um áhrif þessa ákvæðis. Samþykkt að afla ákv. upplýsinga um málið og taka það fyrir á næsta fundi bæjarráð.
· Farið yfir samgönguáætlun. Bæjarráð felur starfsmönnum að fara yfir áætlunina og taka saman minnisblað um fyrirhugaðar framkvæmdir í Hornafirði.
Fundi slitið kl. 18:00


