Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 228
228. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 30. október 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
Fundargerðir
• Heilbrigðisnefnd Austurlands 40. fundur 29. september 2003 til kynningar
• Ársreikningur Haust 2002- sendur út í tölvupósti.
Heimsókn frá Galdri
Forsvarsmenn Galdurs ehf., Sigurður Mar Halldórsson og Heiðar Sigurðsson, fjölluðu um þeirra hugmyndir að vef fyrir sveitarfélagið. Lögðu þeir áherslu á að sveitarfélagið ræki einungis stjórnsýsluvef en legði lénið hornafjordur.is ekki fram til óskylds aðila til að halda úti fréttavef í samkeppni við aðra miðla. Fjölluðu þeir og um samkeppnisaðstöðu fyrirtækisins miðað við núverandi ástand og greindu í því sambandi frá erindi sem þeir hafa sent til Samkeppnisstofnunar.
Innsend erindi og til kynningar
• Félagsmiðstöð – unglingahús, bréf Hrauns fasteignasölu dags. 20. október 2003.
Bæjarstjóra falið að svara þessu erindi Hrauns.
• Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, bréf dags 20. október 2003.
• Dagskrá fjármálaráðstefnu sveitarfélaga miðvikudaginn 5. nóvember 2003.
• Samráðsfundur ferðamálafélaganna í Hornafirði og Skaftárhreppi í Freysnesi 5. nóv. 2003.
Bæjarstjóra falið að tilnefna fulltrúa á fundinn.
• Tillaga að heildarúthlutun jöfnunarframlaga, bréf Félagsmálaráðuneytis dags. 17. október 2003.
Önnur mál
• Stefán gerði að umtalsefni tilboð Rannsóknar og greiningar um úrvinnslu á könnun sem lögð var fyrir alla nemendur í efstu bekkjum grunnskóla á Íslandi. Efni þetta var til umræðu á 223. fundi bæjarráðs. Bæjarráð sammála því að heimila kaup á úrvinnslu könnunar frá því í mars 2003. Ákvörðun um samning til lengri tíma verður tekin í ljósi reynslunnar af þessari úrvinnslu og hvernig hún nýtist til forvarna.
• Samþykkt gagntilboð í hluta Vöruhúss fyrir handmenntastofur, svar við leigutilboði kaupfélagsstjóra, dags. 27. október 2003. (Elín vék af fundi undir þessum lið)
• Sjávarútvegsráðuneytisins mun deila út byggðakvóta sveitarfélagsins, 26,3 tonnum, í byrjun næsta mánaðar kvæmt reglum ráðuneytisins.
• Helgi geindi frá framkvæmdum Vegagerðarinnar við Kotá, hækkun brúar og vegs, endurbætur á varnagörðum o.fl. Bæjarráð leggur áherslu á að frágangur við malarnámu verði góður. Helga falið að hafa umsjón með frágangi námunnar.
• Helgi greindi frá gögnum Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við varnagarða við Jökulsá í Lóni. Einnig greindi hann frá fyrirhugaðri efnistöku vegna þessara framkvæmda. Samþykkt að vísa erindinu til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
• Greint frá vinnu við eignaskiptasamning um Nýheima.
Fundi slitið kl. 11:30


