Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 505
505 fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í ráðhúsi mánudaginn 21. júní 2010 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgerður K. Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson og Árni Þorvaldsson sem áheyrnarfulltrúi. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
Forseti bæjarstjórnar setti fund og gerði tillögu um að Reynir Arnarson yrði kjörinn formaður bæjarráðs og til vara Ásgerði K. Gylfadóttur. Samþykkt með tveimur atkvæðum, einn sat hjá.
Samþykkt að taka tillögu Árna Þorvaldssonar um vinnu við aðalskipulag sem 15. lið á dagskrá.
1. Fundargerðir
· Vaxtarsamningur Suðurlands 1. fundur 1. júní 2010.
Fram kom, í kjölfar fyrirspurnar Björns Inga, að sveitarfélagið er fullgildur aðili að Vaxtarsamningi Suðurlands.
2. Staða fjármála
· Ósamþykkt endurskoðuð fjárhagsáætlun 2010
Ásta fór yfir stöðuna og sagði þetta vera fyrstu skref í endurskoðun á fjárhagsáætlun 2010.
Björn Ingi gerði að umtalsefni vaxtatekjur og vaxtagjöld og óskaði skýringa á þessum liðum. Ásta greindi frá áhrifum reiknaðra stærða á framsetningu reikninganna.
· Staða 30. apríl 2010
Til kynningar.
3. Ósk um umsögn á útg. rekstrarleyfis fyrir Lambhús að Lambleiksstöðum.
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við framangreinda ósk um útgáfu á rekstrarleyfi.
4. Hestamannafélagið Hornfirðingur - uppgjör og staða verks
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu verksins. Bæjarráð samþykkir að greiða næstu afborgun lána vegna byggingar reiðskemmu, kr. 3,3 milljónir. Vísað til endurskoðun á fjárhagsáætlun. Samþykkt að vísa málinu til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5. Viðhaldsáætlun sveitarfélagsins
Björn Imsland mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir framvindu það sem af er ári. Bæjarráð felur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að hefja hugmyndavinnu um millibyggingu á milli íþróttahúss og Sundlaugar, starfsemi sem þar á að fara fram og skipulagi og endurbótum á íþróttahúsi og Heppuskóla samfara þeirri byggingu.
Undir þessum lið var samþykkt að fá kostnaðaráætlun vegna flísalögn á heita potta í sundlaug og einnig kostnað við málningu á pottunum. Samþykkt að hefja undirbúning á endurbótum/lagfæringum á ráðhúsi.
6. Endurskoðun reikninga
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við endurskoðendur um að setja upp starfstöð á Hornafirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við KPMG um endurskoðun reikninga sveitarfélagsins, með því skilyrði að starfstöð verði sett á laggirnar á Hornafirði og verð á þjónustu þeirra verði sambærilegt við það sem hefur verið undanfarin ár. Málið mun síðan koma aftur til afgreiðslu í bæjarráði.
7. Samstarf Jöklasýningar, sveitarfélagsins og Vatnajökulsþjóðgarðs
Hjalti fór yfir fyrirliggjandi drög að samningi við Vatnajökulsþjóðgarð um rekstur jöklasýningar. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.
8. Fundartími nefnda
Hjalti dreifði tillögum sínum að fundarplani nefnda.
9. Skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins.
Hjalti fór yfir tillögur að nýju skipuriti fyrir yfirstjórn sveitarfélagsins. Samþykkt að auglýsa starf „yfirmanns umhverfis- og tæknimála“. Bæjarstjóra falið að útfæra hugmyndir að skipuriti og leggja fyrir næsta fund.
10. Málefni Slysavarnadeildarinnar Kára í Öræfum
Hjalti gerði grein fyrir upphaflegum leigusamningi við Kára sem tengdist byggingu á húsnæði félagsins í Freysnesi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka saman minnisblað um málið.
11. Gagnaver
Hjalti gerði grein fyrir fundi með stjórnarformanni Storice ehf. um málefni gagnaversins og möguleikum þess.
12. Vistvænir áfangastaðir – ósk um að sveitarfélagið taki að sér viðhald og umsjón mannvirkja
Hjalti fór yfir málið og gerði grein fyrir stöðu þessara mála í sveitarfélaginu í dag. Sagði hann vistvæna áfangastaði með viðeigandi hreinlætisaðstöðu geta stórbætt þjónustu við ferðamenn. Ekki liggur fyrir hvaða kostnaður muni falla á sveitarfélagið vegna umræddra verkefna. Bæjarráð fagnar þessari uppbyggingu. Undir þessum lið var einnig rætt um áningarstaði Vegagerðarinnar við þjóðveginn. Samþykkt að vinna að þessum málum með viðeigandi hagsmunaaðilum.
13. Ný starfsemi við Jökulsárlón
Greint frá samskiptum við aðila sem óskar eftir að koma á fót starfsemi við vesturbakka Jökulsárlóns. Bæjarráð hefur samþykkt í samstarfi við landeigendur við lónið að farið verði í deiliskipulagsvinnu á austurbakka lónsins. Bæjarráð telur sig ekki geta samþykkt nýja starfsemi á vesturbakka lónsins þar sem unnið er að framangreindu deiliskipulagi. Bæjarráð leggur einnig áherslu á að það hafi veitt stöðuleyfi á austurbakka lónsins vegna þeirrar þjónustu sem að framan er greint frá. Það stöðuleyfi hafi byggt á að landeigendur allir muni samþykkja það.
14. Umbætur í VSK umhverfi sveitarfélaga
Til kynningar.
15. Tillaga Árna Rúnars Þorvaldssonar um vinnu við aðalskipulag
Árni las upp eftirfarandi tillögu sína:
Bæjarráð samþykkir að vísa afrakstri vinnu starfhóps um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins, sem bæjarstjórn skipaði á síðasta kjörtímabili, til umfjöllunar í umhverfis – og skipulagsnefnd. Bæjarráð felur umhverfis – og skipulagsnefnd að fara yfir fyrirliggjandi gögn um endurskoðun aðalskipulags og móta tillögur fyrir bæjarstjórn með hvaða hætti unnið verður að endurskoðun aðalskipulags á þessu kjörtímabili. Bæjarráð leggur áherslu á að tillögur umhverfis – og skipulagsnefndar feli í sér víðtækt samráð við almenning og kannað verði hvort grundvöllur sé til að halda sérstakt íbúaþing í tengslum við endurskoðun aðalskipulags. Tillögur umhverfis – og skipulagsnefndar skulu liggja fyrir á fundi bæjarstjórnar í október 2010.
Tillaga Árna samþykkt
16. Innsend erindi
· Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 3. maí 2010, deiliskipulag að Lambleiksstöðum.
Til kynningar.
· Mennta- og menningarmálaráðuneytið, bréf 14. maí 2010, Eftirfylgni vegna úttekta á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla 2008-2009.
Vísað til skólanefndar.
· SASS, bréf dags 18. maí 2007, ársþing SASS 2010 9. og 10. september 2010.
Til kynningar
· Ríkisendurskoðun, bréf dags. 11. maí 2010, ábending vegna þjónustusamnings um HSSA.
Árni sagðist telja mikilvægt að stjórn HSSA fari vel yfir ábendingar Ríkisendurskoðunar enda hafi úttekt hennar verið framkvæmd að frumkvæði sveitarfélagsins. Sveitarfélagið eigi jafnframt að nýta sér ábendingar Ríkisendurskoðunar til þess að þrýsta á um nýjan þjónustusamning við ráðuneytið.
Spunnust nokkrar umræður um nýjan þjónustusamning.
Vísað til stjórnar HSSA
· Þjóðminjasafn Íslands, bréf dags. 17. maí 2010, Hofskirkja í Öræfum.
Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.
· Félags- og tryggingamálaráðuneytið, tölvupóstur 26. maí 2010, hagræðingarkröfur á velferðarstofnanir.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 28. maí 2010, viðhaldsátak í þágu aukinnar atvinnusköpunar.
Til kynningar.
· Skipulagstofnun, bréf dags. 28. maí 2010, breytinga á aðalskipulagi sveitarfélagsins, Lambleiksstaðir.
Til kynningar.
· Anna S. Jóhannsdóttir og Knútur Bruun, afrit svarbréfs til Húsafriðunarnefndar dags. 6. júní 2010 og bréf Húsafriðunarnefndar dags. 17. maí 2010 v. torfbæjar að Hofi í Öræfum.
Til kynningar.
17. Önnur mál
Ráðningarsamningur bæjarstjóra, samþykktur með tveimur atkvæðum, einn sat hjá.
Rætt um ósk Þorsteins Sigurbergssonar að setja upp ljósasýningu á nýja vatnstanki. Frestað til næsta fundar bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 19.00


