Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 514
514. fundur
Fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, sunnudaginn 19. september 2010 og hófst hann kl. 11:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201009050 - Félagsmálaráð 207. fundur
Björn Ingi spurði um kostnað við prentun og þýðingu á fjölskyldustefnu. Hjalti upplýsti um kostnaðinn og að ekki væri gert ráð fyrir þessari upphæð á fjárhagsáætlun. Rætt um mikilvægi þess að dreifa stefnunni til fólks vegna hversu marga þætti hún inniheldur er varðar daglegt líf þess. Bæjarráð óskar eftir að félagsmálastjóri mæti á næsta fund bæjarráðs og geri grein fyrir hugmyndum um málið.
Björn Ingi spurði um neyðarvistun.
2. 201009059 - Skólanefnd 3. fundur
Björn Ingi gerði útleigu á sal í Sindrabæ að umtalsefni. Spurði um rök fyrir því að salur í Sindrabæ eigi að vera til útleigu. Reynir benti á sérstöðu Sindrabæjar vegna sviðsins, sem gefur möguleika á uppsetningu ákveðinna viðburða, s.s. tónleika. Ásgerður sagði að eftir breytingar á húsnæðinu væri aðstaða til að framreiða veitingar nánast engin og það í sjálfu sér þrengir mjög notagildi hússins til viðburðahalds. Upplýsti jafnframt að það væri almennt álit skólanefndar að ekki ætti að útiloka Sindrabæ til útleigu fyrir viðburðahald.
Í kjölfarið skapaðist umræða um að viðburðir eigi að fara sem mest fram í öðru húsnæði en í eigu sveitarfélagsins, að kostur væri að skólahúsnæði væri almennt notað sem minnst í viðburðahald þar sem seldar væru veitingar og að gæta verði að samkeppnissjónarmiðum.
Björn Ingi gerði 4. lið að umtalsefni um grasrótarhóp í forvarnarmálum sem hann fagnaði en benti á mikilvægi þess að sveitarfélagið varpaði ekki ábyrgð sinni í þeim málum á þann hóp.
Hjalti sagði mikilvægt að gera greinarmun á grasrótarhópi og starfi í stofnunum sveitarfélagsins. Stofnanir sveitarfélagsins, s.s. eins og skólarnir og félagsmiðstöð sinni forvarnarmálum.
Árni sagði að á vegum USÚ væri hópur starfandi sem vinni að gerð forvarnarstefnu fyrir íþróttahreyfinguna.
Árni spurði um 7. lið um lengda viðveru og hugmyndir um að auka þjónustu í þá veru í sveitarfélaginu. Upplýsti Ásgerður að verið væri að safna upplýsingum um hvernig önnur sveitarfélög vinna í þessum málum en ástæður þess væri að oft skapaðist þörf fyrir úrræði fyrir foreldra á ákveðnum árstímum, s.s. vorin og haustin, þegar engin leikjanámskeið eða annað þess háttar væri í boði.
Umræða skapaðist í kjölfarið hvort ekki væri réttara að kalla lengda viðveru, frístundaheimili, Kátakot eða annað sem lýsir hugmyndinni betur.
Árni ræddi um 9. lið þar sem segir frá fækkun grunnskólanemenda og biðlista á leikskólum. Óskaði eftir tölum um biðlista á leikskólum og hvernig leikskólarnir kynna sinn skóla fyrir foreldrum gagnvart því vali sem til staðar á að vera á Hornafirði. Ásgerður upplýsti að um væri að ræða börn fædd árið 2009.
Árni ræddi 10. lið um velferðarvaktina og lagði áherslur á skyldur kjörinna fulltrúa og starfsmanna stofnana sveitarfélagsins um vellíðan nemenda.
Björn Ingi ræddi um erindi undir öðrum málum og mikilvægi þess að halda vel utan um þau mál sem tekin eru undir þeim lið.
3. 201009041 - Erindi til fjárlaganefndar Alþingis - áherslur sveitarfélagsins vegna fjárlaga 2011
Bæjarstjóra falið að ljúka við minnisblaðið.
4. 200909048 - Útboð á rekstri kaffiteríu í Nýheimum
Samþykkt að ganga til samninga við Nönnu Svavarsdóttur sem var með eina tilboðið. Bæjarráð ítrekar að farið sé eftir útboðsgögnum við frágang samnings og framkvæmd hans.
5. 201004004 - Endurskoðun launaáætlunar 2010
Gerð grein fyrir þróun launa hjá sveitarfélaginu sem af er ári og frávikum frá launaáætlun. Endurskoðuð fjárhagsáætlun tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
6. 201009057 - Reiðhjólagrindur við Hafnarskóla
Erindið fjallar um að bæta aðgengi fyrir þá sem koma hjólandi eða gangandi í skólann. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
7. 201009029 - Umsókn um stofnun fasteignarinnar Flatey 2
Vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar.
8. 201009052 - Eftirlitsskýrsla v. urðunar sorps í Lóni
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
9. 201009060 - Ný skipulagsreglugerð
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
10. 201009054 - Ósk um styrk vegna sumarbúða
Vísað til bæjarstjóra.
11. 201009053 - Uppgjör á framlagi vegna hækkaðra fasteignaskattstekna 2010
Kom fram að framlög jöfnunarsjóðs eru nokkuð hærri en áætlað var. Nemur um 7 m.kr.
12. 200809015 - Bréf Sigurgeirs Jónssonar vegna framkvæmda við Uppsali 2
Starfsmönnum falið að svara erindinu.
13. 200705114 - Önnur mál
Engin.


