Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 517
517. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 11. október 2010 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson, Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
1. 201010013 - Endurbætur á Heppuskóla
Gunnar Borgarsson og Páll Guðlaugsson arkitektar hjá ASK arkitektum sátu fundin undir þessum lið. Páll fór yfir ástand húsnæðis Heppuskóla. Hjalti gerði grein fyrir þeirri undirbúningsvinnu sem framundan eru s.s hönnun og áfangaskiptingu á verkinu. Undir þessum lið sköpuðust almennar umræður um viðhald húsnæðisins.
2. 201010009 - Stjórn HSSA 3 fundur
Hjalti lagði fram drög að erindi til heilbrigðisráðherra þar sem farið er fram á leiðréttingar vegna fjárframlaga til HSSA. Bæjarráð samþykkir framlagt erindi.
Fundargerð samþykkt.
3. 201010001 - Tilkynningaskyldar jarðboranir
Starfsmönnum falið að gera Orkustofnun grein fyrir þeim jaðrborunum sem nú standa yfir í Sveitarfélaginu Hornafirði.
4. 200807048 - Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Haukur Ingi gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr verkefninu. Fram kom að ennþá á eftir að bora nokkrar holur og mæla aftur hitann í þeim holum sem boraðar hafa verið. Bæjarráð felur Hjalta Þór Vignissyni að fara með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum n.k föstudag.
5. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011
Lögð fram drög að forsendum fjárhagsáætlunar dags, 1. október 2010. Bæjarráð samþykkir að fjalla aftur um málið á næsta fundi sínum. Bæjarráð samþykkir að fjalla um málið á fundi bæjarstjórnar í nóvember. Kom fram að stefnt sé að vinnufundi bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.
6. 201002029 - Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Haukur Ingi kynnti deiliskipulagið eins og það var samþykkt af umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.
7. 201009004 - Úttektir á leik- og grunnskólum
Kom fram að menntamálaráðuneytið samþykkti umsókn um úttekt á Grunnskóla Hornafjarðar, samanber auglýsingu ráðnuteytisins frá 4. september 2010.
8. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð
Lagt fram kauptilboð í eign nr. 218-1176, 01.02.01, bæjrráð samþykkir að veita framkvæmdastjóra fjármála- og framkvæmdasviðs umboð til að ganga til samninga um sölu eignarinnar.


