Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 229
229. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 13. nóvember 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1.Fundargerðir
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 100. fundur 4. nóvember 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 54. fundur 29. október 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Heilbrigðisnefnd Austurlands aðalfundur fundur 30. október 2003 ásamt skýrslu stjórnar til kynningar.
• Samband ísl. sveitarfélaga 707. stjórnarfundur 17. október 2003 til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2004
Ásta lagði fram drög að fjárhagsáætlun 2004. Bæjarráð samþykkir að framkvæmdastjórar vinni áfram skv. fram lögðum römmum fyrir málaflokka.
3. Ósk um samþykki sveitarfélagsins á sölu á lóðarhlutum
• Páll Stefánsson Hnappavöllum 4 selur Guðmundi B Þórðarsyni lóðarhluta úr landi Fells.
Bæjarráð samþykkir aðilaskiptin og afsalar sér forkaupsrétti að lóðarhlutanum með fyrirvara um samþykki jarðanefndar.
• Þórður Stefánsson Hnappavöllum 4 selur Stefaníu Þórðardóttur lóðarhluta úr landi Fells.
Bæjarráð samþykkir aðilaskiptin og afsalar sér forkaupsrétti að lóðarhlutanum með fyrirvara um samþykki jarðanefndar.
4. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 31. október 2003 v/niðurfellinga og afsláttar á fasteignagjöldum ásamt leiðbeiningum til sveitarfélaga.
Framkvæmdastjórum fjármála- og stjórnsýslusviðs hefur verið falið að útbúa drög að reglum um afslátt eða niðurfellingu fasteignaskatts á grundvelli 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995.
• Ályktanir frá faghópi leikskólastjóra 10. október 2003.
Til kynningar.
• Viðbótarlán –bréf Íbúðalánsjóðs 24. október 2003.
Til kynningar.
• Kynningarfundur um átak í sameiningu sveitarfélaga, bréf verkefnistjórnar 28. október 2003.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Sigurlaug Gissurardóttir og Rannveig Ólafsdóttir mættu á fundinn til að kynna Norðurslóðaáætlunina og hugmynd að samstarfsverkefni sem miðar að því að þróa og greina vannýtt tækifæri í ferðaþjónustu í sambandi við þjóðgarða sem og að meta áhrif þessara tækifæra á náttúruauðlindir.
Halldóra kynnti drög að nefndaráliti og tillögur að reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð með fram komnum athugasemdum sem hún sendi inn sem fulltrúi sveitarfélagsins í nefndinni.
Bæjarstjóri sagði frá fyrirhuguðum fundi með sveitarstjórn Skaftárhrepps 28. nóvember nk. kl 15:00.
Rætt var um hugmyndir um gervigrasvöll og mögulega styrkveitingu til þess. Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að afla frekari upplýsinga um málið.
Stefán sagði frá því að samkomulag hafi náðst við KASK um leigu á húsnæði fyrir handmenntastofur. Stefnt er að því að kennsla geti hafist í húsnæðinu í janúar á næsta ári.
Reynir spurðist fyrir um útborgunardag launa og beiðni starfsmanna um að fá greitt laun 1. dag hvers mánaðar. Ásta sagði unnið að lausn málsins og að niðurstaða liggi væntanlega fyrir fyrir áramót.
Fundi slitið kl. 13:00


