Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 531
531. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 31. janúar 2011 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Kristján Sigurður Guðnason, Guðrún Ása Jóhannsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201101067 - Atvinnu- og menningarmálanefnd 6. fundur
Árni benti á að kynningarfundur um sóknaráætlun 20 20 fyrir Ísland verður haldinn n.k miðvikudag. Hjalti ræddi hugmynd að úttekt á atvinnu- og menningarmálum í sveitarfélaginu, gerði hann það að tillögu sinni að atvinnu- og menningarmálanefnd fjallaði um málið. Guðrún Ása spurðist fyrir um nemendaráðið í FAS. Umræður sköpuðust um félagslíf ungmenna. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu Hjalta.
2. 201101069 - Félagsmálaráð Hornafjarðar - 213
Hjalti ræddi drög að reglum um úthlutun leiguíbúða og gerði grein fyrir störfum félagsmálaráðs um málið. Umræður sköpuðust um fjölda eignaíbúða sveitarfélagsins sem eru á leigumarkaði.
3. 201101066 - Vinnustaðagreining 2011
Hjalti fjallaði um vinnustaðagreiningu, gerði hann grein fyrir fyrri könnun og tillögu að endurtekningu á henni. Bæjarráð er sammála um að endurtaka vinnustaðagreininguna.
4. 201101065 - Endurbætur á Heppuskóla
Kynntar voru teikningar að endurbótum á Heppuskóla. Umræður sköpuðust um teikningarnar. Árni spurðist fyrir um hvort þörf væri á þessum fjölda á kennslustofum í endurbótum á Heppuskóla í ljósi fjölda bekkjardeilda á næstu árum. Taldi hann einnig mikilvægt að vinnan taki mið af öllu húsnæði grunnskólans. Vísað til áframhaldandi vinnu skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
5. 201101064 - Endurnýjun á menningarsamningi 2011
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum um endurnýjun á menningarsamningum, ræddi hann um aðdraganda menningarsamninga og fleiri þætti. Fundað verður með þingmönnum kjördæmisins á næstu dögum um málefni menningarsamninga. Bæjarráð mótmælir hugmyndum um skiptingu fjármuna til menningarsamninga. Bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
6. 201101063 - Eignasjóður - Umsjón fasteigna
Hjalti gerði grein fyrir fyrirkomulagi á umsjón og útleigu á fasteignum í eigu sveitarfélagsins. Bæjarráð fagnar framlögðum tillögum.
7. 201101068 - Reglur um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili
Ásgerður gerði grein fyrir málinu. Hjalti fjallaði um málið og lagði til að reglurnar verði sendar til umsagnar hjá skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefnd. Umræður sköpuðust um hvort reglurnar ættu að taka mið af tómstundarkorti. Reglunum vísað til skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar.
8. 201002029 - Breyting á deiliskipulagi miðbæjarsvæði - reitur A
Haukur Ingi fór yfir málið. Bæjarráð vísar málinu til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
9. 201011051 - Styrkir 2011 - umsóknir
Ásgerður gerði grein fyrir tillögum að styrkjum fyrir árið 2011. Bæjarráð er sammála um framlagða tillögu um úthlutun styrkja fyrir árið 2011. Árni styður tillögun en bendir á að rekstur sóknarnefnda er á ábyrgð annarra en sveitarfélagsins.
10. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Haukur Ingi gerði grein fyrir opnun tilboð í verkið Ráðhús/Svavarssafn endurinnréttingar og breytingar. Gerði hann grein fyrir að málið verði tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.


