Fundargerð bæjarráðs 532
532. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 7. febrúar 2011 og hófst hann kl. 16:00Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Kristján Sigurður Guðnason, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201101011F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 8
Umræður sköpuðust um undirbúning áningastaða við nýja göngustíginn og deiliskipulag í Stafafellsfjöllum. Spurt var um reglur er varða búsetu íbúðir í bílskúrum. Haukur gerði grein fyrir því að skila þarf inn teikningum ef breyta á bílskúr í íbúð. Fundargerð samþykkt.
3. 201008047 - Svæðisráð Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 22. fundur
Hjalti gerði grein fyrir þróun rekstrar Suðursvæðis Vatnafellsþjóðgarðs, gerði hann einnig grein fyrir framkvæmdaáætlun 2011. Umræður sköpuðust um skipurit þjóðgarðsins. Fundargerð til kynningar.
4. 201008050 - Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna funda og ráðstefna utan sveitarfélagsins
Hjalti fór yfir reglurnar, bæjarráð samþykkir framlagðar reglur með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
5. 201009078 - Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið. Haukur Ingi fór yfir tilboðin sem bárust í verkið Ráðhús/Svavarssafn endurinnréttingar og breytingar, lagði hann til að gengið verði til samninga við Þingvaði ehf. sem gaf tilboð upp á 47.958.729.- kr. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu. Umræður sköpuðust um brunavarnir í Ráðhúsi undir þessum lið.
6. 201010059 - Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Haukur Ingi gerði grein fyrir minnisblaðinu. Minnisblaðinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.


