| 1. |
1106004F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 12 |
|
|
Guðrún tók undir tillögu nefndarinnar um breyttan opnunartíma lengdrar viðveru og að endurskoða eigi gjaldsskrá leikskóla m.t.t vistunartíma barna frá kl 16:00 - 17:00. Einnig tók hún undir bókun Matthildar um að reka eigi einn sex deilda leikskóla. Björn Ingi spurðist fyrir um bókun um starfsmannamál sundlaugar um erfiðleika við mönnun. Stefán svaraði fyrirspurninni og gerði grein fyrir umræðum um opnunartíma leikskóla og lengdrar viðveru sem fram fóru á fundinum. Umræður sköpuðust um opnunartíma leik- og grunnskóla. Björn Ingi vakti máls á síðasta punkti fundargerðarinnar um stubbahúsi við sundlaug og mikilvægi þess að fjarlægja það. Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að fjarlægja stubbahús við sundlaugina.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
201106023 - Fundargerð svæðisráðs suðursv. Vatnajökulsþjóðgarðs 27 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 3. |
201106024 - Hluthafafundur í Frumkvöðlasetri Austurlands 7. júní 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 4. |
201104082 - Tilboð í skólaakstur |
|
|
Stefán fór yfir tilboðin, gerði hann grein fyrir tilboðsleiðum A og B. Reynir bar upp tillögu um að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda skv. tilboðsleið A, á grunni útboðs og Innkaupareglna sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að vinna að málinu. |
| |
|
|
| 5. |
201106009 - Ósk um ráðningu í hlutastarf vegna tilsjónar í barnaverndarmálum |
|
|
Stefán gerði grein fyrir ósk félagsmálastjóra. Umræður sköpuðust um málið. Framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs falið að fara yfir málið með félagsmálastjóra og skólastjórum Grunnskólans. Bæjarráð er jákvætt gagnvart umsókninni. |
| |
|
|
| 6. |
201106033 - Ákvörðun um laun í vinnuskóla 2011 |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir samanburði á launum vinnuskóla á Hornafirði og hjá öðrum sveitarfélögum. Bæjarráð samþykkir tillögu Hauks Inga um laun til vinnuskóla. |
| |
|
|
| 7. |
201106028 - Tillögur um aðkomu sveitarfélagsins, ráðuneytis og skóla að fjármögnun náms fatlaðs nemanda í Fas |
|
|
Bæjarráð Hornafjarðar áréttar að það sé hlutverk ríkisins að tryggja öllum jafnan aðgang að framhaldsskólum. Bæjarráð frestar afgreiðlsu á erindinu til næsta fundar og felur starfsmönnum að fara yfir tillögu skólameistara FAS og taka saman greinargerð um málið. |
| |
|
|
| 8. |
200706103 - Samningur um afnot af landi fyrir mótorkrossbraut |
|
|
Starfsmönnum falið að fara yfir ósk um stuðning með umsækjanda. |
| |
|
|
| 9. |
201106002 - Leiga á íþróttahúsi á Höfn vegna landsþings Kiwanis 23. og 24. september |
|
|
Bæjarráð samþykkir framlagða ósk frá Kiwanis. |
| |
|
|
| 10. |
200805074 - Hafnarvík Heppa verkefni |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu málsins. Búið er að gera drög að skipulagsuppdrætti og nú er unnið að skipulagsgreinargerð. |
| |
|
|
| 11. |
201106034 - Ósk um styrk vegna þjóðahátíðar á Austurlandi 2011 |
|
|
Ósk um styrk hafnað. |
| |
|
|
| 12. |
201106030 - Skýrsla v. banaslyss á vegamótum þjóðvegar 1 og Hafnarvegar til umsagnar |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skýrsluna. Skýrslunni vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 13. |
201106027 - Bréf Vegagerðarinnar um leiðir vegna lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót |
|
|
Bæjarráð fagnar framkomnu bréfi Vegagerðarinnar, dags. 6. júní 2011, og fellst á tillögu nr. 2 í bréfinu, sem felur í sér áfangaskiptingu á þeirri leið sem mörkuð var með breytingu á gildandi aðalskipulagi sem staðfest var af ráðherra 28. júní 2009. Bæjarráð telur mikilvægt að málinu verði hraðað eins og kostur er þar sem verkefnið falli vel að markmiðum yfirvalda um mannaflsfrekar og hagkvæmar framkvæmdir. |
| |
|
|
| 14. |
200909003 - Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum - fyrirspurn frá Skipulagsstofnun |
|
|
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsstjóra. |
| |
|
|
| 15. |
201105035 - Hauggasrannsóknir á urðunarstöðum á Íslandi |
|
|
Lagðar fram leiðbeiningar frá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Starfsmönnum falið að sækja um framlengingu á undanþágu. |
| |
|
|
| 16. |
201106029 - Öryggi á sundstöðum - árétting frá fundi um liði í reglugerðinni |
|
|
Málinu vísað til starfsmanna íþróttamiðstöðvar. |
| |
|
|
| 17. |
201106026 - Ný reglugerð um framkvæmdaleyfi |
|
|
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 18. |
201106032 - Dagur íslenskrar náttúru 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 19. |
201105036 - Almenningssamgöngur á Suðurlandi |
|
|
Björn Ingi gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á almenningsamgöngum á suðurlandi, taldi hann nauðsynlegt að fara vel yfir málið áður en það verður afgreitt. Þegar til afgreiðslu málsins kemur verði hagsmunir íbúa og fyrirtækja hafðir að leiðarljósi. Björn Ingi sagði frá fyrirhuguðum kynningarfundi um málið 27. júní n.k. Umræður sköpuðust um málið. Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið sem fram komu á fundinum um að nauðsynlegt sé að taka tillit til íbúa og fyrirtækja á suð- austurlandi þegar kemur til afgreiðslu málsins. |
| |
|
|
| 20. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
| |
|
|