Fundargerð bæjarráðs 555
Fundur haldinní ráðhúsi,22. ágúst 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður,
Björn Ingi Jónsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi,
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri,
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. Kjaramál
Hjalti upplýsti um samtöl sín við starfsmenn Sambands sveitarfélaga og leikskólastjóra. Sagði að tvær deilur væru uppi, annars vegar um framkvæmd verkfallsins og hins vegar um kjaraþáttinn. Bæjarráð bendir á að umboð kjaraviðræðna fyrir hönd sveitarfélagsins er hjá Sambandi sveitarfélaga. Sveitarfélagið fer því eftir viðmiðum sambandsins um skipulag starfsemi leikskóla ef til verkfalls kemur.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00


