| 1. |
1109002F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 137 |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um ágreining um greiðslur undir 1. lið. Björn Ingi fagnaði komu skemmtiferðarskipa og spurðist fyrir um áætlaðan kostnað vegna kaupstefna. Hjalti sagði að kostnaður vegna allra kaupstefna sé áætlaður 2 m.kr. Hjalti gerði grein fyrir ágreiningsmálum. Björn Ingi spurðist fyrir um 5. lið. Hjalti gerði grein fyrir umræðum í hafnarstjórn um málið. Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1109001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 16 |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um 7. lið og benti einnig á að fundurinn hafi tekið skamman tíma. Haukur Ingi gerði grein fyrir málefni 7. liðar. Haukur Ingi gerði grein fyrir öðrum málum og umræðum um greiðfærni um Almannaskarð. Starfsmönnum falið að ræða við Vegagerðina. Umræður sköpuðust um deiliskipulag í Stafafellsfjöllum.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
201109024 - Fundargerð vinnufundar skóla,íþrótta og tómstundanefndar um skólabyggingar 07092011 |
|
|
Stefán fór yfir fundinn og gerði hann grein fyrir því að teikningar fyrir breytingar á Heppuskóla eru á lokastigi. Gerði hann ráð fyrir því að aðalteikningar geti legið fyrir um miðjan október og kostnaðaráætlun samhliða því. Bæjarráð óskar eftir því að fá teikningarnar sendar með tölvupósti. Björn Ingi spurðist fyrir um viðbyggingu við Krakkakot. Stefán svaraði fyrirspurninni. Árni Rúnar spurðist fyrir um hvar teikningar fyrir breytingar innandyra í Heppuskóla hafi fengið umfjöllun, spurði hann um hvort starfsmenn eða foreldrar hafi fengið tækifæri til að ræða tillögur að breytingum. Stefán og Ásgerður svöruðu fyrirspurninni. Árni taldi mikilvægt að starfsmenn Grunnskóla Hornafjarðar fengju tækifæri á að fjalla um breytingarnar áður en þær verði samþykktar. Árni Rúnar vildi setja framkvæmdirnar í samhengi við þróun nemendafjölda undanfarin ár og spár. Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 4. |
201109021 - Forsendur fjárhagsáætlunar 2012 |
|
|
Hjalti og Haukur Ingi kynntu forsendur. Næstu skref eru að stilla upp ársreikningi fyrir næstu ár. Umræður sköpuðust um forsendurnar og endurskoðaða fjárhagsáætlun. Björn Ingi óskaði eftir því að fá greiningu á þeim útgjaldarömmum sem tengdir eru vísitölu. |
| |
|
|
| 5. |
201109020 - Staða bæjarsjóðs 31. júlí 2011 |
|
|
Kom fram að staðan er í samræmi við áætlanir. |
| |
|
|
| 6. |
201109012 - Fasteignagjöld - innheimtuferli |
|
|
Hjalti kynnti drög að innheimtuferli fasteignagjalda. Umræður sköpuðust um málið, stöðu heimila, fyrirtækja og innheimtuferlið í heild sinni. Bæjarráð samþykkir framlagt vinnuferli á innheimtu fasteignagjalda með áorðnum breytingum. Starfsmönnum falið að leita eftir tilboðum í innheimtu fyrir sveitarfélagið. |
| |
|
|
| 7. |
201107029 - Umsókn um endurnýjun starfsleyfis fyrir urðunarstað í Lóni |
|
|
Haukur Ingi kynnti málið. Starfmönnum falið að senda umsóknina um endurnýjun starfsleyfis fyrir urðunarstaðinn í Lóni til UST. |
| |
|
|
| 8. |
200805074 - Hafnarvík Heppa - framtíð vöruhúss |
|
|
Björg Erlingsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið. Björg og Hjalti fóru yfir málið. Gerðu þau grein fyrir næstu skrefum er snúa að framtíðarnýtingu á húsnæði innan svæðisins. Björn Ingi var sammála mörgu af því sem kemur fram í minnisblaðinu og taldi mikilvægt að Pakkhúsið verði áfram í eigu sveitarfélagsins. Reynir taldi rétt að horfa einnig til þess að opna sýningu á neðri hæð Miklagarðs. Hjalti taldi rétt að boða til íbúafundar um málið á sama tíma og deiliskipulagið verður kynnt. Vísað til áframhaldandi vinnu atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 9. |
201102060 - Skólavogin |
|
|
Stefán kynnti Skólavogina og taldi hana gott matstæki fyrir marga þætti skólastarfs. Umræður sköpuðust um mikilvægi þess að geta greint og mælt árangur í skólastarfi. Málinu vísað til skóla-, íþrótta-, og skólanefndar.
Stefán vék af fundi kl. 18.00. |
| |
|
|
| 10. |
200711003 - Fráveita í Nesjahverfi |
|
|
Bjarni Hákonarson kom á fundinn undir þessum lið. Greindi hann frá mati sínu á landgæðum, annars vegar á landi undir veg frá þjóðvegi að Stekkhól og hins vegar landi í Skógey. Haukur Ingi gerði grein fyrir framtíðaráformum um uppbyggingu fráveitu í Nesjum og hreinsikerfis. Umræður sköpuðust um málið. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. |
| |
|
|
| 11. |
201109009 - Reglur um girðingar við göngustíga og opin svæði |
|
|
Lögð fram svör frá nokkrum sveitarfélögum um reglur þeirra er málið varðar. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. |
| |
|
|
| 12. |
201109017 - Beitilönd í sveitarfélaginu |
|
|
Kom fram að samningar eru útrunnir. Starfmönnum falið að undirbúa endurútleigu á beitilandi. |
| |
|
|
| 13. |
201101058 - Erindisbréf fyrir starfshóp um hátíðir og viðburði á Hornafirði |
|
|
Lögð fram drög að erindisbréfi um hátíðir og viðburði í sveitarfélaginu. Bæjarráð samþykkir framlögð drög. Ákveðið að skipa í hópinn á næsta fundi bæjarráðs. |
| |
|
|
| 14. |
201108046 - Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis f. Öræfin ehf. gistiheimili Vesturhús fl. II Hofi í Öræfum |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfisins. |
| |
|
|
| 15. |
201003027 - Samningur milli sveitarfélagsins og Matís um stuðning um vöruþróun matvæla í sveitarfélaginu |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Björn Ingi ræddi um þriðju grein samningsins og sagði mikilvægt að hægt verði að mæla árangur af samningnum. Atvinnu- og menningarmálanefnd falið að ljúka við gerð samnings við Matís til allt að tveggja ára. |
| |
|
|
| 16. |
201109018 - Ósk um umsögn um umsókn Sóley Minerals ehf.um leyfi til leitar og rannsókna á magetíti fyrir Suðurlandi og í Héraðsflóa |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir. |
| |
|
|
| 17. |
201108036 - Niðurstöður sýnatöku við strandlengju Hafnar |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir niðurstöðum. Kom fram að hreinsivirki við Leiðarhöfða skilar tilætluðum árangri. |
| |
|
|
| 18. |
201003029 - Fyrirspurn vegna starfsemi við Jökulsárlón |
|
|
Hjalti fór yfir erindi LEX dags 25. ágúst 2011 er varðar starfsemi í þjóðlendu. Bæjarráð er sammála afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar um að fela starfsmönnum að rita öllum þeim sem starfa innan þjóðlendu í Sveitarfélaginu Hornafirði erindi þar sem þeim er bent á að skoða leyfisveitingar.
Hjalti fór yfir málið og afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar. Lögð fram drög að bréfi til afþreyingarfyrirtækja í ferðaþjónustu sem starfa innan þjóðlendu. |
| |
|
|
| 19. |
201109014 - Hvatning velferðarvaktarinnar í upphafi skólaárs 2011-2012 |
|
|
Vísað til skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálarráðs. |
| |
|
|
| 20. |
201109013 - Þátttaka ungmenna í Umhverfisþingi 2011 |
|
|
Vísað til fræðslu- og félagssviðs. |
| |
|
|
| 21. |
200809015 - Skráning bygginga í landi Uppsala 1 og 2 í fasteignaskrá |
|
|
Málinu vísað til skipulagsstjóra. |
| |
|
|
| 22. |
201108047 - Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 23. |
201109006 - Uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 24. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um fund sem haldinn var í Ekru um stefnumótun í heilbrigðis- og öldrunarmálum. Hjalti sagðist senda fundargerð í tölvupósti til bæjarráðsmanna. |
| |
|
|