Fundargerð bæjarráðs 559
559. fundur
559. fundur bæjarráðs Hornafjarðar
haldinn í ráðhúsi, 19. september 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Guðrún Júlía Jónsdóttir embættismaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1109004F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 220 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1108008F - félagsmálaráð Hornafjarðar - 219 |
|
|
Björn Ingi ítrekaði sitt álit um að ekki ætti að færa úthlutun leiguíbúða í trúnaðarmálabók.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
201109041 - Fundargerð 789. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga |
|
|
Björn Ingi vakti athygli á 2. lið um þjónustu við fatlað fólk.
Fundargerð til kynningar. |
| |
|
|
| 4. |
201105020 - Afhending og kynning á skýrslu KPMG um breytingar á stjórnun fiskveiða |
|
|
Flosi Eiríksson og Sigurjón Arnarson mættu á fundinn undir þessum lið, dreifðu skýrslu sem þeir höfðu unnið að ásamt öðrum starfsmönnum KPMG og fóru yfir helstu þætti hennar. Bæjarráð sammála um að taka skýrsluna til efnislegrar umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs. |
| |
|
|
| 5. |
201109021 - Fjárhagsáætlun 2012 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir helstu niðurstöðu miðað við forsendur sem kynntar voru á síðasta fundi og framkvæmdaramma. |
| |
|
|
| 6. |
201101058 - Skipun í starfshóp um hátíðir og viðburði í sveitarfélaginu |
|
|
Frá B lista er Kristján Sigurður Guðnason, D lista Björn Ingi Jónsson og S lista Árni Rúnar Þorvaldsson. |
| |
|
|
| 7. |
201004041 - Ósk um samning vegna ljósalistaverks á vatnstanki |
|
|
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar. |
| |
|
|
| 8. |
201107029 - Ábyrgðaryfirlýsing vegna urðunarstaðar í Lóni |
|
|
Gerð grein fyrir að um hefðbundna yfirlýsingu er að ræða þegar starfsleyfi er gefið út. Bæjarstjóra falið að rita undir yfirlýsinguna. |
| |
|
|
| 9. |
201109043 - Starfsmannamál |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð ákvað að fá starfsmanna á sinn fund nk. mánudag. |
| |
|
|
| 10. |
201109044 - Leiguamningar um atvinnuhúsnæði í eigu sveitarfélagsins |
|
|
Bæjarráð samþykkir framlagða fyrirmynd að leigusamningi. Kom fram að mikilvægt er að gera slíka samninga við alla þá sem leigja húsnæði af sveitarfélaginu og laga samninga að nýjum ákvæðum húsaleigulaga. |
| |
|
|
| 11. |
201102052 - Drög að minnisblaði til ráðherra um heilbrigðis- og öldrunarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
|
Guðrún Júlía Jónsdóttir kom á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir helstu atriðum sem fram koma í minnisblaðinu. Bæjarráð samþykkir framlagðar forsendur sem koma fram í minnisblaðinu. Bæjarstjóra og framkvæmdastjóra HSSA falið að rita erindi til velferðarráðherra um viðræður á þessum grunni. |
| |
|
|
| 12. |
201109046 - Evrópski tungumáladagurinn 26. sept. 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 13. |
201109045 - Ábending til sveitarfélaga: Sveitarfélög geri aðgerðaáætlun um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum |
|
|
Vísað til félagsmálaráðs. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.30