| 1. |
1109005F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 15 |
|
|
Björn Ingi ræddi um vinnulag Hafnarvík - Heppu. Hjalti gerði grein fyrir framvindu málsins. Björn Ingi spurðist fyrir um lán á málverkum í eigu sveitarfélagsins og hvort þau væru tryggð á meðan þau eru flutt. Bæjarráð leggur áherslu á að málverkin verði tryggð á meðan þau eru í útleigu og að sá aðili sem fær verkin að láni sjái um fullnægjandi tryggingu á verkunum. Hjalti gerði grein fyrir samtali við bændur um smalanir í Nesjum. Hjalti kynnti að minnisblað um fjallskil hafi verið unnið af lögfræðingi að ósk atvinnu- og menningarmálanefndar. Árni Rúnar ræddi málefni Heimamarkaðsbúðarinnar, lagði hann áherslu á að gætt verði að samkeppnissjónarmiðum þegar húsnæði á vegum sveitarfélagsins yrði leigt út.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1109012F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 14 |
|
|
Björn Ingi spurðist fyrir um 5. lið og hvort ræða þyrfti hann í tengslum við fjárhagsáætlun 2012. Árni Rúnar spurðist fyrir um þróun stöðugilda starfsmanna Grunnskóla Hornafjarðar og nemendaþróun skólans.
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 3. |
1109009F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 13 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir fjárlagafrumvarpi og kröfu um 20 m.kr. niðurskurð á HSSA. Sagðist hafa fengið vilyrði um fund í velferðarráðuneytinu á næstu dögum. Árni Rúnar óskaði eftir því að fá sendar upplýsingar um rekstrarstöðu stofnunarinnar. Starfsmönnum falið að senda gögn í tölvupósti. Tók hann einnig undir orð Guðrúnar Ingimundardóttur undir þriðja lið. Árni spurðist fyrir um viðbrögð við auglýsingu um læknastöður. Hjalti sagði að engar umsóknir hafa borist og gerði grein fyrir erfiðri stöðu víðar á landsbyggðinni hvað varðar ráðningu lækna. |
| |
|
|
| 4. |
201109054 - Staða og framtíð Heimamarkaðsbúðarinnar á Höfn |
|
|
Fulltrúar Ríki Vatnajökuls mættu á fundinn undir þessum lið og fylgdu framlögðu erindi úr hlaði. Kom fram vilji þeirra til að tryggja Heimamarkaðsbúðinni framtíðarstaðsetningu í samvinnu við bæjarráð. Bæjarráð fagnar framkomnu erindi og tekur undir mikilvægi þess að vinna að því að festa heimamarkaðsbúðina í sessi. Stefnt að fundi atvinnu- og menningarmálanefnd og matvælaframleiðenda á næstu vikum til að fara yfir málinu. |
| |
|
|
| 5. |
201109043 - Starfsmannamál - framhald frá síðasta fundi |
|
|
Starfsmaður kom á fundinn og gerði grein fyrir starfi sínu og ósk um breytingu á launasamningi. |
| |
|
|
| 6. |
201108039 - Reglur um leikskólabörn í skólabílum |
|
|
Framlagðar reglur kynntar. Björn Ingi spurðist fyrir um næstsíðustu málsgrein reglnanna. Stefán gerði grein fyrir jákvæðum samtölum sínum við verktaka um málið. Bæjarráð samþykkir reglurnar með þeim viðbótum sem fram komu á fundinum. |
| |
|
|
| 7. |
200711015 - Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla - tillaga frá skóla- íþrótta og tómstundanefnd um hækkun greiðslna |
|
|
Bæjarráð er sammála um nauðsyn þess að endurskoða reglurnar og vísar til framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að móta tillögu þess efnis. |
| |
|
|
| 8. |
200711016 - Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði - endurskoðun |
|
|
Umræður sköpuðust um reglurnar. Breytingarnar á þeim eru einangraðar við kaflann
"Veikindi og smithætta". Einnig var rætt um tímann frá 16:15 - 17:15. Árni Rúnar spurðist fyrir um hvort komið hefði til tals að breyta sumarlokun leikskólanna. Framlagðar reglur samþykktar. |
| |
|
|
| 9. |
201109021 - Forsendur fjárhagsáætlunar 2012 |
|
|
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar. Samþykkt að vísa til umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð felur nefndum að fara yfir gjaldskrár sem heyra undir starfsvið þeirra og gera tillögur um breytingar fyrir fjárhagsáætlun 2012. |
| |
|
|
| 10. |
201106005 - Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011 |
|
|
Ásta gerði grein fyrir endurskoðaðri fjárhagsáætlun. Rekstrarniðurstaða í A-B hluta verður 124 m.kr. í afgang og veltufé til rekstrar verður 236 m.kr. Kom fram að launabreytingar eru talsvert háar en hækkun á útsvari mætir þeim kostnaðarauka að mestu leiti. Óskað var eftir nánari skýringum á launabreytingaryfirliti. Bæjaráð vísar framlagðri endurskoðun á fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 11. |
200812072 - Nýtt kirkjugarðsstæði - deiliskipulag |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Sagði að skipulagsstofnun gerir eftirtalda athugasemd við framsetningu skipulagstillögunar í bréfi dagsettu 22.09.11. Athugasemdin snýr að því að texti og uppdráttur fari ekki saman og eru til þess fallin að valda misskilningi þar sem bílastæði eru sýnd á uppdrætti utan við afmarkaðan deiliskipulagsreit, þeirra er hinsvegar gerð skil í textaskilmálum. Á kynningartíma var haldinn einn kynningarfundur þar sem fram kom m.a að bílastæðamál við kirkjuna væri brýnt úrlausnarefni. Enginn fundarmanna mæltu því í mót en tóku undir þau sjónarmið. Uppdrátturinn sýnir bílastæði utan við afmörkun skipulagstillögunnar en honum er getið á um í textaskilmálum. Í ljósi þessa, er lagt til að afmörkun skipulagsreitsins verði færður utan um bílastæði og akstursleið næst leikskóla en bílastæði inna lóðar kirkjunnar verði felld út. Þannig verði komið til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar án þess að gera breytingar á megin markmiðum skipulagsins.
Bæjarráð sammála um að breytingar séu smávægilegar. Vísað til bæjarstjórnar. |
| |
|
|
| 12. |
200711003 - Fráveita í Nesjahverfi - landskipti |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að því. |
| |
|
|
| 13. |
201003048 - Samningur við Hólabrekku ehf. |
|
|
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Stefán gerði grein fyrir stöðu mála. Rætt var um tímalengd á samningi. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að ræða við jöfnunarsjóð sveitarfélaga um þá hluta samningsins sem snúa að greiðslum úr sjóðnum. Starfsmönnum falið að fara yfir ferðaþjónustumál fatlaðra. |
| |
|
|
| 14. |
201102060 - Skólavogin - ákvörðun um þátttöku |
|
|
Stefán greindi frá málinu. Bæjarráð samþykkir að skrifa undir viljayfirlýsingu um þátttöku með fyrivara um almenna aðild sveitarfélaga að verkefninu. |
| |
|
|
| 15. |
201109072 - Lóðarleigusamningar - könnun á stöðu |
|
|
Hjalti greindi frá könnun byggingarfulltrúa. Í skoðun hans kom fram að fjölmargir lóðarleigusamningar eru útrunnir og gera þurfi átak í endurnýjun þeirra. Lagði til að ráðinn yrði verktaki eða starfsmaður tímabundið til að sinna þessu verkefni. Vísað í umhverfis- og skipulagsnefnd til umfjöllunar. |
| |
|
|
| 16. |
201109078 - Girðingamál og ágangur hreindýra á Mýrum |
|
|
Hjalti sagði frá samskiptum við Náttúrustofu Austurlands, Umhverfisstofnun og bændur á Mýrum. Sagði að rætt verði áfram um lausn málsins. |
| |
|
|
| 17. |
201109057 - Fjármál sveitarfélaga - erindi EFS til sveitarfélaga |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 18. |
201109055 - Ársfundur Jöfnunasjóðs sveitarfélaga 2011 |
|
|
Hjalti Þór Vignisson verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum. |
| |
|
|
| 19. |
201109071 - Viðskiptaáætlun fyrir varmadælur |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Vísað í atvinnu- og menningarmálanefnd. |
| |
|
|
| 20. |
201109075 - Aðalfundarboð Eignarhaldsfél Brunabótafél Ísl 2011 |
|
|
Haukur Ingi Einarsson er fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum. |
| |
|
|
| 21. |
201109076 - Boð um aðkomu sveitarf. að vinnu við útgáfu landsáætlunar um meðhöndlun úrgangs |
|
|
Vísað til framkvæmdasviðs. |
| |
|
|
| 22. |
201109013 - Umhverfisþing 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 23. |
201105020 - Skýrsla KPMG um breytingar á stjórnun fiskveiða |
|
|
Lögð fram skýrsla KPMG um mat á áhrifum á áorðnum og fyrirhuguðum breytingum á Sveitarfélagið Hornafjörð. Bæjarráð tók skýrsluna til umfjöllunar. Ákveðið að senda hana á fjölmiðla staðarins til kynningar fyrir almenning. |
| |
|
|
| 24. |
200810096 - Tilnefning fulltrúar sveitarf. í skólanefnd FAS |
|
|
Árni Rúnar óskaði lausnar sem fulltrúi sveitarfélagsins í skólanefnd FAS þar sem hann væri orðinn starfsmaður skólans. Bæjarráð sammála um að Snæfríður Svavarsdóttir verði fulltrúi í stað Árna Rúnars Þorvaldssonar. |
| |
|
|
| 25. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
|
|
Björn Ingi ræddi um málefni samgöngunefndar SASS. |