Fundargerð bæjarráðs 561
561. fundur
561. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 10. október 2011 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá:
| 1. |
1110001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 17 |
|
|
Umræður sköpuðust um deiliskipulag í Stafafellsfjöllum, einnig rætt um gjaldskrár sem heyra undir nefndina og sorphirðu 2-3 tunnu kerfi. Björn Ingi ræddi um nauðsyn þess að yfirfara lóðarleigusamninga. Fundargerð samþykkt. |
| 2. |
201110010 - Fundargerðir stjórnar suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs |
|
|
Umræður sköpuðust um liðinn önnur mál. Árni Rúnar spurðist fyrir um sóknaráætlun 2020. Hjalti svaraði fyrirspurninni. Fundargerð til kynningar. |
| 3. |
201109021 - Fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2012 ásamt 3ja ára áætlun A og B hluti |
|
|
Fyrstu drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og þriggja ára áætlun kynnt. Umræður sköpuðust um 10 ára áætlun og áætlaðar framkvæmdir og lántökur á þeim tíma. Starfsmönnum falið að stilla upp 10 ára áætlun miðað við að framkvæmdir verði 150 m.kr í A og B hluta árin 2016 - 2021. Björn Ingi vakti máls á því að aðhalds verði gætt í úthlutun ramma og ekki sjálfgefið að þeir hækki í samræmi við vísitölu. |
| 4. |
201110014 - Fyrstu drög að 10 ára áætlun 2012-2021 |
|
|
Lagt fram yfirlit um þróun rekstrar, langtímalána og sjóðstreymi. |
| 5. |
201102062 - Tilboð í Pakkhús |
|
|
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Umræður sköpuðust um tilboðið. Samþykkt að óska eftir fresti um viku til að fara yfir málið. |
| 6. |
1110022 - Umsókn um lóð |
|
|
Rúnar Sigurðsson byggingarfulltrúi kom inn á fundinn og gerði grein fyrir umsókninni. Lagði hann til að málið færi í grenndarkynningu í samræmi við ráðgjöf Skipulagsstofnunar. Bæjarráð tekur jákvætt í umsóknina og samþykkir framlagða tillögu um að grenndarkynna málið. Starfsmönnum falið að vinna úr málinu. |
| 7. |
201102052 - Málefni HSSA |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir málefnum HSSA og fyrirhuguðum næstu skrefum. |
| 8. |
201110019 - Val á rafhönnuði vegna endurbóta á Grunnskóla Hornafjarðar - Heppuskóla |
|
|
Björn Imsland kom inn á fundinn undir þessum lið og kynnti tillögu um val á rafhönnuði vegna endurbóta á Heppuskóla. Umræður sköpuðust um málið. Bæjarráð samþykkir að framkvæma verðkönnun. |
| 9. |
201110012 - Ósk um styrk v. sláttuvélar f. Golfklúbbinn |
|
|
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Málinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2012. |
| 10. |
201110011 - Áhrif nýrra sveitarstjórnarlaga á stjórnsýslu sveitarfélaga |
|
|
Upplýst að unnið er að undirbúningi að uppfærslu á samþykktum sveitarfélagsins út frá nýjum sveitarstjórnarlögum. |
| 11. |
200711003 - Fráveita í Nesjahverfi |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Hjalti lagði til að gengið verði frá samningum í samræmi við þegar framlögð gögn. Framlögð tillaga samþykkt af tveim atkvæðum fulltrúum Framsóknar, fulltrúi Sjálfstæðisflokks sat hjá, áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar studdi tillöguna. |
| 12. |
201110013 - Fundir með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2011 |
|
|
Til kynningar. |
| 13. |
201110015 - Afmælisferð Nýheima |
|
|
Hjalti fór yfir málið, lagði hann til að sendur verði einn fulltrúi úr hverju framboði. Málinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu 2012 |
| 14. |
201110020 - Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Ís og ævintýri vegna Jöklasels - gisti og veitingastaðar á Skálafellsjökli |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun leyfisins. |
| 15. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð: |
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45