Fundargerð bæjarráðs 587
587. fundur
587. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 23. apríl 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.
Dagskrá:
| 1. |
1204004F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 144 |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir umræðum um dælingu úr Hornafjarðarhöfn. Björn Ingi ítrakaði fyrri bókarnir sínar um að merkja vel uppdælingarsvæðið þegar dæling hefst. Björn Ingi spurðist fyrir um fyrirhugaða dælulögn Skinneyjar - Þinganess fyrir hráefni frá frystihúsi yfir í fiskimjölsverksmiðju. Gerð var grein fyrir hugmyndum um dælulögninni og að beðið sé eftir endanlegri útfærslu. |
| |
|
|
| 2. |
1204003F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 21 |
|
|
Árni Rúnar spurðist fyrir um umræðu um svör við fyrirspurn um kostnaðarþátttöku ungmenna í ferðum á vegum stofnana sveitarfélagsins á 579. fundi bæjarráðs. Björn Ingi spurði hvernig sveitarfélagið kæmi út í samanburði við önnur sveitarfélög. Upplýsti Stefán að tvö sveitarfélög hafi gefið upp kostnað við sambærilegar ferðir, annað sveitarfélagið er með hærri greiðslu p. nemenda en hitt með lægri. Umræður sköpuðust um þær ferðir sem nemendur GH fara í og þann kostnað sem þeim fylgir. |
| |
|
|
| 3. |
201201074 - Endurbætur innanhúss í Heppuskóla - kaup á búnaði |
|
|
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.
Samþykkt að kaupa hluta af raflagnaefni sem falla annarsáfanga strax í samræmi við framlagða tillögu.
|
| |
|
|
| 4. |
200812072 - Kirkjugarðsstæði - útboð |
|
|
Haukur Ingi gerði grein fyrir útböðsgögnunum. Gerðar voru smávægilegar breytingar á útboðsgögnunum. Starfsmönnum falið að bjóða verkið út. |
| |
|
|
| 5. |
201203074 - Humarhátíð 2012 - samningur |
|
|
Hjalti gerð grein fyrir samningsdrögunum. Björn Ingi taldi óeðlilegt að hækka framlag sveitarfélagsins til verkefnisins um 20 % frá fyrri árum.
Framlagður samningur samþykktur til eins árs.
Bæjarstjóra falið að skrifa undir samninginn.
|
| |
|
|
| 6. |
201107029 - Drög að starfsleyfi fyrir urðunarstað í Lóni |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 7. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar varðandi tölvu- og tæknimál sveitarfélagsins
1. Hver var kostnaður sveitarfélagsins vegna rekstrarsamnings um rekstur og virkni tölvukerfis sveitarfélagsins á síðasta ári?
2. Hvenær var ofangreindur rekstrarsamningur undirritaður og hvenær rennur hann út?
3. Hver var kostnaður sveitarfélagsins við kaup á Gagnaveitu Hornafjarðar á síðasta ári?
Svör við fyrirspurnum
1. Greitt er fyrir 114 útstöðvar 3.894.- kr. pr. útstöð á mán. Á ári 5.326.992,-
2. Rekstrarsamningur við Hátíðni var undirritaður 20/2/2003 og er uppsegjanlegur með árs fyrirvara.
3. Gagnaveita Hornafjarðar var keypt á 28. m.kr. á árinu 2011.
Árni Rúnar þakkaði fyrir framlögð svör.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:35