Fundargerð bæjarráðs 589
589. fundur
589. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 7. maí 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri sviðs
Fundargerð ritaði: Ásta H. Guðmundsdóttir, fjármálastjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1204009F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 24 |
|
|
Fundargerð samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1205002F - Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 60 |
|
|
Fundargerð til kynningar. |
| |
|
|
| 3. |
1205003F - Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 20 |
|
|
Guðrún Júlía Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið og fór yfir skýrslu KPMG um Þróun og samanburð fjárframlaga við samanburðarsveitarfélög.
Árni Rúnar bendir á að Sveitarfélagið Hornafjörður er eina sveitarfélagið af þeim sem tekin eru til samanburðar í skýrslu KPMG sem er með þjónustusamning við ríkið um reksur heilbrigðisstofnunar.
Lagður var fram tölvupóstur frá bæjarstjóra dags 4. maí um næstu skref varðandi samning við ríkið um heilbrigðisþjónustu lagður fram á fundinum.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar HSSA og felur framkvæmdastjóra HSSA og bæjarstjóra vinna áfram að málinu í samræmi við tillögur bæjarstjóra.
Vakin er athygli á 5 lið fundargerðarinnar varðandi skipan í starfshóp um bygging nýs hjúkrunarheimilis. Starfsmönnum falið að ljúka við erindisbréfið og leggja fyrir bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 4. |
201201055 - Ársreikningur HSSA 2011 |
|
|
Guðrún Júlía fylgdi málinu úr hlað og Ársreikningrur Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands lagður fram.
Helstu niðurstöðuur eru: Niðurstaða rekstrar 2011 er jákvæð um 712 þús.kr. Eigið fé er neikvætt um 4,2 m.kr. og handbært fé er 12.2 m.kr.
Bæjarráð vísrar ársreikningi HSSA til samþykktar í bæjarstjórn
Guðrún Júlía vék af fundi kl 17:11.
|
| |
|
|
| 5. |
201204036 - Innanhúsbreytingar í Gömlubúð |
|
|
Haukur Ingi sagði frá stöðu máli, sagði hann að fyrirhugað sé að flytja Gömlubúð í lok maí. Hann sagði að verið væri að kostnaðarmeta II áfanga sem eru innanhússbreytingar. Fyrirséð er að Vatnajökulsþjóðgarður mun reka upplýsingamiðstöð og Jöklasýningu í Vöruhúsi nú í sumar. Málið tekið fyrir á næsta fundi. |
| |
|
|
| 6. |
201203075 - Mannlífsþáttur Rúv |
|
|
Haukur Ingi greindi frá stöðum málsins og lagði fram drög að kostnaðaráætlun sveitarfélagsins. Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu starfsmanna í samræmi við umræður á fundinum. |
| |
|
|
| 7. |
201205006 - Umsókn um rekstrarleyfi í flokki II- ósk um umsögn |
|
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina. |
| |
|
|
| 8. |
201205007 - Samstarf um dreifingu á gor frá Sláturvinnslu Norðlenska |
|
|
Lagt fram minnisblað frá Hauk Inga Einarssyni dags. 2. maí 2012 um málið. Bæjarráð líst vel á og felur starfsmönnum að fylgja málinu eftir. |
| |
|
|
| 9. |
200812004 - Nýherjabúðir aðalfundur |
|
|
Aðalfundur er 9. maí nk. Bæjarráð felur Hjalta Þór Vignisson að fara á fundinn. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur til aðalfundar Nýherjabúða. |
| |
|
|
| 10. |
200708017 - Sandbakkavegur 2 0201 |
|
|
Kauptilboð lagt fram að upphæð kr. 11,4 m.kr. Bæjarráð samþykkir sölu á Sandbakkavegi 2 0201 fastanúmer 218-1152. Starfsmönnum falið að ganga frá málinu. |
| |
|
|
| 11. |
201205008 - Ósk um umsögn um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 727. mál |
|
|
Til kynningar. |
| |
|
|
| 12. |
200801024 - Stækkun á kirkjugarði 1. áfangi - tilboð |
|
|
Haukur Ingi lagði fram tilboð í stækkun á núverandi kirkjugarði 1. áfangi. Tvö tilboð bárust í verkið og var samþykkt að taka tilboði frá lægstbjóðandi sem var Rósaberg ehf. Tilboð Rósabergs ehf var 6.398.000.- ( 91,6 % af kostnaðaráætlun ) en kostnaðaráætlun var upp á 6.985.000.- |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15