|
Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði Hornafjarðar vegna byggingar fótboltahúss yfir gervigrasvöll.
Nú standa yfir framkvæmdir við byggingu húss yfir gervigrasvöllinn sem gerður var fyrir um tveim árum. Húsið sjálft er gjöf frá fyrirtækinu Skinney Þinganes ehf. Nauðsynlegt er fyrir kjörna fulltrúa að fá upplýsingar um ýmis mál þessu tengd, einkum ef einhver kostnaður þessu tengdur fellur á bæjarsjóð því ekki var gert ráð fyrir fjárframlögum í þessa framkvæmd.
A. Hver er ástæða þess að grafa þarf upp lagnir að vellinum sem lagðar voru við gerð vallarins. ?
a. Hvaða lagnir er verið að fjarlægja ?
b. Hver er kostnaðurinn við að fjarlægja lagnirnar ?
c. Hver er kostnaðurinn við að leggja og tengja þær að nýju ?
d. Hvað nýtist af þeim lögnum sem lagðar voru við lagningu gervigrasvallar ?
B. Þegar ákveðið var að byggja gervigrasvöll var einnig ákveðið að hanna hann þannig að hægt væri að byggja yfir hann síðar.
a. Var þeirri ávörðun breitt og þá hvers vegna ?
b. Ef svo er hver tók þá ákvörðun ?
c. Er aukakostnaður vegna þess að steypa þarf steinsúlur og reka þær niður umhverfis völlinn en ekki steyptir hefðbundnir sökklar ?
d. Ef svo er hver er hann og hver ber kostnaðinn ?
e. Er einhver annar kostnaður sem ekki er spurt sérstaklega um sem fellur á sveitarfélagið við þess framkvæmd ?
C. Girðing umhverfis gervigrasvöllinn
a. Hver var kostanaður við girðingu umhverfis fótboltavöllinn skipting milli efnis og vinnu ?
b. Er hægt að selja þessa girðingu eða nýta annar staðar ?
D. Það lá fyrir að Skinney Þinganes gaf sveitarfélaginu 60 milljónir á afmælisári sínu. Sú gjöf var skilyrt því að reist yrði fótboltahús og því var hún ekki greidd út þegar ákveðið var að byggja aðeins gervigrasvöll á sínum tíma.
a. Hafði meirihlutinn eða bæjarstóri einhverja vitneskju um hugmyndir eða vilja Skinneyjar Þinganes til að byggja og gefa sveitarfélaginu fótboltahús á þeim tíma sem ráðist var í gerð gervigrasvallarins ?
b. Hafði meirihlutinn eða bæjarstóri einhverja vitneskju um hugmyndir eða vilja Skinneyjar Þinganes til að byggja og gefa sveitarfélaginu fótboltahús á þeim tíma sem ráðist var í að girða fótboltavöllinn af ?
Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði Hornafjarðar vegna kostnaðar og skipulagsmála við gerð mannlífsþáttar RUV dagana 15 til 18 júní 2012.
Það er aðdáunarvert og ber að þakka það mikla starf bæði starfsmanna sveitarfélagsins og annarra bæjarbúa dagana og vikur fyrir tökur á umræddum þætti og á meðan á upptökum stóð. Sú mikla breyting sem átti sér stað á hafnarsvæðinu ber merki um mikinn samtakamátt íbúa og dugnað á svo stuttum tíma sem raun ber. Bæjarráð ákvað að leggja til verksins 1,5 milljón króna og lagði Fruman til 1,5 milljón á móti samtals 3 milljónir króna sem var rammi þess sem áætlað var í verkið. Samt eru margar spurningar sem leita á hugann og eru þær lagðar fram í þessari fyrirspurn.
A. Hver er heildarkostnaður á verkinu ?
a. Hvernig skiptist hann á milli efniskaupa og vinnu ?
b. Hvaða verktaka fengu greitt fyrir vinnu og hvað mikið ?
c. Hvaða félagasamtök fengu greitt og hvað mikið ?
d. Hvaða einstaklingar fengu greitt og hvað mikið ?
e. Hvernig sundurliðast efniskaup á verkþætti ?
f. Var eitthvað að efni sem lagt var til framkvæmda til á lager hjá bænum ?
g. Ef svo er hvert er virði þess efnis ?
B. Hver er skiptingin á milli aðkeyptrar vinnu og vinnu starfsmanna sveitarfélagsins ?
a. Hvað fór mikill tími starfsmanna ráðhús í þetta verkefni og hver er kostnaðurinn ?
b. Hvað fór mikil vinna starfsmanna áhaldahúss í verkefni og hver er kostnaðurinn ?
c. Hver er kostnaður áhaldahús við verkefnið annar en b. Liður og í hverju fellst hann ?
d. Hvað fór mikil vinna vinnuskólans í verkefnið og hver er kostnaðurinn ?
e. Hver er kostnaður við ferð á Sauðarkrók vegna stensla ?
f. Hver er kostnaður við skemmd á ljósleiðara ?
C. Hvernig er eigin tækjavinna kostnaðarreiknað ?
a. Tímagjald traktorsgröfu og fjöldi tíma ?
b. Tímagjald dráttavélar og fjöldi tíma ?
c. Tímagjald dráttavélar með sturtuvagn og fjöldi tíma ?
D. Hver stóran hluta þessarar framkvæmdar má telja sem varanlega eign eða framkvæmd og í hverju fellst þá sú eign ?
E. Hvað er það sem verður fjarlægt og sett í fyrra horf ?
F. Er einhver kostnaður sem aðrar stofnanir sveitarfélagsins en þær sem hér hafa verið nefndar bera vegna verkefnisins. ?
G. Eru einhver áform um frekari framkvæmdir á svæðinu og ef svo er í hverju felast þær ?
H. Hver eru rökin fyrir því að ekkert af þeim framkvæmdum sem farið var í vegna þessa verkefnis hefur fengið lögformlega umfjöllun inna stjórnsýslu sveitarfélagsins ?
a. Í hvaða stöðu setur það starfsfólk sveitarfélagsins þegar ekki er farið að lögformlegum reglum við slíka framkvæmd ?
b. Hvaða fordæmi er sveitarfélagið að gefa út í samfélagið þegar það fer ekki að settum reglum ?
c. Hvað var það sem réði því að ráðist var í allar þessar framkvæmdir á þessum stað en ekki t.d. miðbæ sveitarfélagsins ?
|