Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 597
597. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 16. júlí 2012 og hófst hann kl.13:00.Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
|
201207004 - Skemmdarverk á skilti í Almannaskarið |
||
|
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, umhverfis- og skipulagsstjóri, mætti á fundinn undir þessum lið. Greindi frá því að skotið hafi verið á upplýsingaskilti við Almannaskarð. Upplýsti að haft hafi verið samband við lögreglu. |
||
|
|
||
|
2. |
201004019 - Umsókn um nýlagningu vegar á ríkisjörð vestan Hólmsár á Mýrum |
|
|
Gunnlaugur Rúnar gerði grein fyrir umsókn frá þjóðgarðsverði. Kom fram að vegurinn er í samræmi við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarð sem bæjarráð hefur fjallað um og samþykkt. Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða framkvæmd. |
||
|
|
||
|
3. |
201207006 - Viðhald á Sameign "Ekra" |
|
|
Rúnar gerði grein fyrir málinu. Íbúi Víkurbrautar 30 kom á framfæri að aðgengismál á lóð hússins væru ekki í nægjanlega góðu lagi. Bæjarráð felur fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn húsfélagsins að hvetja til þess að farið verði í viðeigandi framkvæmdir og samþykkir þær fyrir sitt leyti. |
||
|
|
||
|
4. |
201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón |
|
|
Gunnlaugur Rúnar upplýsti að öll gögn lægju nú fyrir til að auglýsa deiliskipulagið. Björn Ingi lagði áherslu á að starfsemi sem fram fer við Jökulsárlón hafi fullgild leyfi til starfseminnar og lagði áherslu á að skilti við vesturbakka lónsins yrði að fjarlæga tafarlaust vegna umferðarhættu sem það skapar. Þá velti Björn Ingi því upp hvort sveitarfélagið gæti skapað sér skaðabótaábyrgð ef það sinnir ekki eftirlitshlutverki sínu. Þá spurði hann um hvort starfsemi á vesturbakkanum hafi fengið leyfi frá sveitarfélaginu. Upplýst að svo er ekki. Hjalti sagði að nú þegar öll gögn lægju fyrir og skipulagið færi í auglýsingu myndi enginn þurfa að velkjast í vafa um hver stefna sveitarfélagsins væri um uppbyggingu á svæðinu. Þegar skipulagið lægi ljóst fyrir sæi hann fyrir sér að starsfemi sem fram fer við Jökulsárlón þyrfti að aðlaga sig að nýju skipulagi. |
||
|
|
||
|
5. |
201207002 - Fasteignamat 2013 |
|
|
Kom fram að matið hækkar um 11% í sveitarfélaginu. Ákveðið að taka málið upp við gerð fjárhagsáætlunar 2013. |
||
|
|
||
|
6. |
201207001 - fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016 |
|
|
Vísað til hafnarstjórnar. Rætt um rannsóknir og aðgerðir á Grynnslunum til að tryggja aukið dýpi, aukna viðhaldsdælingu í Hornafjarðarhöfn og sjóvarnir við Hornafjörð. |
||
|
|
||
|
7. |
201206030 - Umsókn um starf upplýsinga og gæðastjóra |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir vinnu sinni undanfarna daga. Bæjarstjóra falin áframhaldandi vinna að málinu. |
||
|
|
||
|
8. |
201102063 - Íbúaþing |
|
|
Lögð fram skýrsla um afrakstur íbúaþings. Rætt um að tímasetja þær aðgerðir sem eftir á að ráðast í. Kom fram að skýrslan fái umfjöllun í tengslum við vinnu við gerð aðalskipulags. |
||
|
|
||
|
9. |
201206055 - Úrbætur á Leirusvæði |
|
|
Bæjarráð ræddi nauðsynlegar aðgerðir á Leirusvæði til að hefta fok. Bæjarráð samþykkir allt að 1,5 m.kr. í aðgerðir til að hefta fok á svæðinu. Jafnframt felur bæjarráð starfsmönnum að hefja undirbúning að fullnaðarfrágangi á svæðinu, þ.m.t lagnir, götur og gangstíga. Bæjarráð mun óska eftir að íbúar á Leirusvæðinu tilnefni þrjá íbúa í hóp sem umhverfis- og skipulagsstjóri geti haft samráð við um aðgerðir. |
||
|
|
||
|
10. |
201201074 - Endurbætur innanhúss í Heppuskóla |
|
|
Ásgerður óskaði eftir upplýsingum um gang mála í Gömlubúð. Bæjarráð telur mikilvægt að fá fundargerðir verkfunda til kynningar. |
||
|
|
||
|
11. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Hjalti upplýsti að svör við fyrirspurnum sem bárust á síðasta fundi bæjarráðs verði lögð fram á næsta fundi bæjarráðs. |
||
|
|
||


