Fundargerð bæjarráðs 600
600. fundur
600. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi , 23. ágúst 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1208003F - Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 24 |
|
|
Rætt um ráðningu kennara í tónskólann. Valdemar spurðist fyrir um hvernig kennslukvóta yrði háttað og upplýsti Ásgerður um ákvörðun skólanefndar frá því í vor.
Valdemar spurði um samsetningu gjaldskrár sundlaugar. Ásgerður upplýsti að hugsunin væri að kort yfir lengra tímabil yrðu hlutfallslega ódýrari en yfir styttri tíma. Þá var rætt um hvort kæra ætti til lögreglu þegar fólk skellti sér til sunds utan opnunartíma.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 2. |
1206004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 28 |
|
|
Reynir spurði um eignarhald á skiltum við Almannaskarð og taldi rétt að eigandi sæi um endurbætur á því.
Valdemar óskaði eftir því að upplýst yrði nánar um hvaða efnistökusvæði væri verið að ræða í lið 4.
Fundargerð samþykkt.
|
| |
|
|
| 3. |
201204033 - Fjarskiptamál í dreifbýli |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir vinnu við skoðun á tæknilausnum og grófum áætluðum kostnaði. Vísaði í samtöl við íbúa í sveitum um nauðsyn þess að ráðast í lagfæringar. Sagði Hjalti frá fundi með Orkufjarskiptum um samvinnu um uppbyggingu fjarskiptakerfis. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og leggja valkosti í þessum efnum fyrir bæjarráð sem síðan mun taka málið upp í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Ennfremur brýnir bæjarráð fyrirtæki sem hyggja á uppbyggingu fjarskipta eða plægingu raflagna í jörð að hafa samráð við sveitarfélagið um slíkt. |
| |
|
|
| 4. |
201204036 - Gamlabúð II. áfangi - útboð |
|
|
Hjalti greindi frá skoðun starfsmanna sveitarfélagsins og hönnuða um hvernig best væri að standa að lagfæringum á klæðningu og einangrun. Starfsmönnum falið að útbúa útboðsgögn samkvæmt framkomnum upplýsingum um fullnaðarfrágang hússins sem og breytingar innanhús. Starfsmönnum falið að leita eftir stuðningi húsafriðunarnefndar. |
| |
|
|
| 5. |
201106062 - Stækkun Krakkakots - útboð |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir stöðunni á Krakkakoti. Bæjarráð samþykkir að bjóða verkið út. |
| |
|
|
| 6. |
201208010 - MÍ 15-22 ára 11.-12. ág. 2012 á Höfn |
|
|
Bæjarráð þakkar fyrir greinargóða skýrslu og óskar mótshöldurum til hamingju með velheppnað mót. Árni lagði til að skýrslunni yrði vísað til skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar. Jafnframt að hún verði send forstöðumanni íþróttamannvirkja. Það var samþykkt. Bæjarstjóra falið að hefja skoðun á möguleikum þess að koma upp vallarhúsi við Sindravelli. |
| |
|
|
| 7. |
201003029 - Starfsemi við Jökulsárlón |
|
|
Hjalti upplýsti að deiliskipulagið fari í auglýsingu á föstudaginn. Farið hafi verið yfir málið með lögfræðingi sveitarfélagsins. |
| |
|
|
| 8. |
201207003 - Verklýsing fyrir frágang opinna svæða og við félagsheimili |
|
|
Starfsmönnum falið að gera nákvæmari tíma- og kostnaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð |
| |
|
|
| 9. |
201207011 - Verklýsing um framtíðarfyrirkomulag safnamála |
|
|
Starfsmönnum falið að gera nákvæmari tíma- og kostnaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð. |
| |
|
|
| 10. |
201208023 - Staða bæjarsjóðs 31.júlí 2012 |
|
|
Lögð fram staða fjármála fyrstu sjö mánuði ársins. Kom fram að rekstrarafgangur er alls 120 m.kr. |
| |
|
|
| 11. |
201208007 - Samningur milli Austurbrúar ses. sveitarfélagsins og FAS |
|
|
Hjalti sagði frá ábendingu um að koma þurfi skýrt fram áað samningur eigi við um starfstöð á Höfn, að koma þurfi skýrt fram að sveitarfélagið gefi eftir húsaleigu allt að 3 m.kr. og að ríkisframlag til starfstöðvarinnar miðist við hlutfall Hornfirðinga af íbúum á starfsvæði Austurbrúar í málefnum framhaldsfræðslu og fjarnáms á háskólastigi. Bæjarstjóra falið að skrifa undir samning með áorðnum breytingum. |
| |
|
|
| 12. |
201208025 - Uppsögn úr starfi sem framkvæmdastjóri HSSA |
|
|
Hjalti sagði frá samskiptum við ráðningarskrifstofu og lagði fram kostnaðaráætlun vegna auglýsinga og ráðgjafar, alls um 700 þúsun krónur. Bæjarráð samþykkir að gera samning við ráðningarskrifstofu. |
| |
|
|
| 13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
Í ljósi fyrirspurnar frá Ásgerði Gylfadóttur um áhrif hækkunar virðisaukaskatts á gististaði leitaði bæjarstjóri til Þorvarðs Árnasonar forstöðumanns í Háskólasetrinu sem sendi dags. 19. ágúst 2012 minnispunkta. Í minnispunktunum kemur fram að ef meðalverð á 2ja manna hótelbergi sé um nú 20.000 kr/nótt (kr. 18.692 án VSK) þá myndi sama herbergi kosta um 23.460 kr/nótt ef VSK prósentan hækkar í 25,5% - þetta samsvarar 17,3 % nettó hækkun á verði gistingar. Bæjarráð þakkar framlagða minnispunkta og mun koma sjónarmiðum á framfæri við þingmenn og ráðherra er varða hagsmuni greinarinnar á næstunni. |
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.30