Fundargerð bæjarráðs 614
614. fundur
614. fundur bæjarráðs Hornafjarðarhaldinn í ráðhúsi, 10. desember 2012 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson formaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri sviðs
Bryndís Bjarnarson starfsmaður fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson , upplýsinga og gæðastjóri.
Dagskrá:
1. 1211019F - Umhverfis- og skipulagsnefnd – 33
Fundargerð samþykkt.
2. 1211012F - Umhverfis- og skipulagsnefnd – 34
Reynir ræddi um 3 lið skautasvell á Hrossabithaga.
Bæjaráð leggur til að bráðabyrgðarlýsing verði sett upp á svæðinu líkt og var gert síðasta vetur.
Björn Ingi benti á lið 5. um útgáfu framkvæmdaleyfa.
Bæjarráð felur umhverfis og skipulagstjóra að gera tillögu að ferli varðandi útgáfu framkvæmdaleyfa.
Bæjarráð óskar eftir því að starfsmenn kostnaðarmeti liði 13 og 14 í fundargerðinni.
Fundargerð samþykkt.
3. 201204036 - Gamlabúð II. Áfangi
Björn Imsland kynnti tilboð og fór yfir breytingar frá síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir ganga til samninga við Þingvað ehf. samningsupphæð verður 58.818.074. bæjarstjóra er falið að skrifa undir samninginn.
4. 201212011 - Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðir stjórnar SASS nr. 461 frá 5. nóvember og 462 frá 29. nóvember lagðar fram til kynningar.
Rætt var um þjónustu Strætó.bs.
5. 201212007 - Ósk um samvinnu vegna uppbyggingar á félagssvæði Akstursíþróttafélags A-Skaft.
Bæjarráð vísar málinu til umhverfis og skipulagsnefndar og felur jafnframt starfsmönnum að fara yfir fyrirliggjandi gögn.
6. 201212009 - Útboð Brotamálmar og raftæki 2012
Málið var lagt fram og frestað til næsta fundar.
7. 201209043 - Reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks á Hornafirði
Reglurnar samþykktar með áorðnum breytingum.
8. 201212010 - Launakjör hafnarstarfsmanna
Bréf frá Félagi opinberra starfsmanna FOSS barst bæjarráði og lagt fram. Bæjarstóra falið að vinna áfram að málinu.
9. 201212008 - Fyrirspurn vegna verslunarreksturs í þjónustumiðstöð á tjaldsvæði
Bréf barst bæjarráði frá Imstak ehf. þann 3. des. þar sem bent er á að verslunarrekstur er stundaður í þjónustuhúsnæði við tjaldstæðið í eigu sveitarfélagsins. Bæjarráð felur starfsfólki að vinna úr málinu og svara bréfritara.
10. 201211023 - Nýheimar 2012-2022
Tillögur starfshóps vegna viljayfirlýsingar lögð fram.
Bæjarráð fagnar þeirri vinnu sem hefur farið fram og vísar málinu til áframhaldandi vinnu.
11. 201212012 - Boð um sjálfboðaliða
Lagt fram bréf frá Worldwidefrends-Veraldarvinum, þann 18.09 2012 þar sem boðið er upp á sjálfboðavinnu félaga í samtökunum.
Bæjarráð vísar bréfinu til umhverfis og tæknisviðs þar sem verði kannaður kostnaður og ávinningur sveitarfélagsins.
12. 201212013 - Boð um sjálfboðaliða SEEDS
Bréf lagt fram frá SEEDS-Sjáflboðaliðar umhverfis landið í sjö ár, ódagsett, þar sem boðið er upp á sjálfboðavinnu félaga í samtökunum.
Bæjarráð vísar bréfinu til umhverfis og tæknisviðs þar sem verði kannaður kostnaður og ávinningur sveitarfélagsins.
13. 201212014 - Endurskoðun aðalskipulag Fljótsdalshrepps - ósk um umsögn
Endurskoðun aðalskipulag Fljótsdalshrepps lagt fram og vísað til umhverfis og skipulagsfulltrúa.
14. 201212015 - Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um húsleigubætur (réttur námsmanna) mál nr. 49
Málinu vísað til félagsmálastjóra.
15. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45


