Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 235
235. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 8. janúar 2004, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, og Eyjólfur Guðmundsson sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Stjórn Sambands ísleskra sveitarfélaga 709. fundur 12. desember 2003 – til kynningar
2. Ósk um samþykki sveitarfélagsins á sölu á jörðinni Hvalnes
Bæjarráð afsalar sér forkaupsrétti að jörðinni Hvalnes og samþykkir aðilaskiptin með fyrirvara um samþykki dómsmálaráðuneytis og jarðanefndar.
3. Ósk um að húsið Stöðull í landi Hóla verði skráð sem bænahús
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Reglur um bifreiðamál
Bæjarráð samþykkir fram lagðar reglur um bifreiðamál.
5. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 15. desember 2003 um húsaleigubætur.
Bæjarráð Hornafjarðar mótmælir þeim vinnubrögðum sem fram koma í bréfi Félagsmálaráðuneytis (Jöfnunarsjóði sveitarfélaga) dags. 15. des. 2003 um greiðsluprósentu vegna húsaleigubóta. Það er óþolandi aðstaða fyrir sveitarfélög að þurfa að sæta skerðingu á framlögum til sameiginlegra verkefna og velta þannig auknum kostnaði yfir á sveitarfélögin. Bæjarráð beinir því til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að ná fram leiðréttingu þessara mála.
• Bréf Umhverfisstofnunar dags. 18. desember 2003 um greiðslu hreindýraarðs fyrir árið 2003.
Til kynningar.
• Ályktun íbúafundar sem haldinn var í Hofgarði í Öræfum 13. desember 2003.
Fyrirhugað er að boða fund í næstu viku með bæjarráði og helstu aðilum í sveitarfélaginu sem sem komið hafa að undirbúningi stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs.
• Bréf Menntamálaráðuneytisins dags. 22. desember 2003 um greiðslu styrks til menningarhúss.
Til kynningar.
• Bréf Fornleifaverndar ríkisins dags. 4. desember 2003 v. deiliskipulagsvinnu í Skaftafelli.
Samþykkt að senda bréfið til umhverfisnefndar og menningarmálanefndar til kynningar.
• Háskóli Íslands – bréf háskólarektors dags. 11. desember 2003 um nauðsyn aðgerða til að auka hlut fatlaðs fólks á vinnumarkaði.
Erindinu vísað til félagsmálaráðs.
• Hagstofan – íbúatölur og þróun mannfjölda í Austu - Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Lögð voru fram drög að sameiginlegum bókunum sveitarstjórna Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um vegabætur á þjóðvegi 1, fjarskiptamál, útvarps- og sjónvarpssendingar og raforkumál.
Fundur er fyrirhugaður með verkefnisstjórn um eflingu sveitarstjórnarstigsins miðvikudaginn 21. janúar nk. á Höfn.
Kynnt var staða jarðhitarannsóknar við Hoffell.
Fundi slitið kl. 11:10


