Bæjarráð
Bæjarráð Hornafjarðar 622
622. fundur
622. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, 18. febrúar 2013 og hófst hann kl.16:15.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson , Upplýsinga og gæðastjóri .
Dagskrá:
|
1302003F - Félagsmálaráð Hornafjarðar - 237 |
||
|
Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
2. |
1212011F - hafnarstjórn Hornafjarðar - 152 |
|
|
Birgir Árnason mætti á fundinn undir þessum lið. Björn Ingi spurði um liði sem eru ekki á framkvæmdaáætlun 2013 í veitum t.d. Hrísbraut. Birgir greindi frá að þar eru ekki vandamál sem stendur. Einnig spurði hann um lið 7 fyrirhugaðan fund hjá Siglingastofnun og lið 6 framkvæmdir og viðhald við höfnina. Hjalti upplýsti um fyrirhugaðan fund og að von sé á viðauka í fjárhagsáætlun. Fundargerð samþykkt. |
||
|
|
||
|
3. |
201212011 - Fundargerðir stjórnar SASS |
|
|
Árni bar upp fyrirspurn um lið 5 í fundargerðinni sóknaráætlun Suðurlands. Hjalti gerði grein fyrir málinu og greindi frá því að hornfirðingar hafi tekið þátt í vinnu við sóknaráætlunina og það ætti eftir að vinna ramma fyrir áætlunina. Þá spurði hann um lið 9 um samninginn við Hornafjörð, Hjalti greindi frá hugmyndum við ráðstöfun peninga sem koma með samningnum. Fundargerð til kynningar. |
||
|
|
||
|
4. |
201302052 - Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja á Höfn |
|
|
Björn Imsland mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði grein fyrir vinnu með ASK arkitektum um hugmyndir um frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja. Kom fram markmið með vinnunni er að ná heildarsýn yfir væntanlega þörf á úrbótum á núverandi mannvirkjum og byggingu nýrra mannvirkja til næstu ára áður en ráðist verður í framkvæmdir. Bæjarráð felur starfsmönnum að kostnaðarmeta einstaka framkvæmdaliði á framlagðri teikningu. |
||
|
|
||
|
5. |
201302059 - Malbikun 2013 |
|
|
Birgir Árnason mætti á fundinn undir þessum lið hann fór yfir hugmyndir um malbikunarframkvæmdir. Lögð var fram hönnun á frágangi lóðar við Báruna sunnan vert. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna útboðsgögn í samræmi við umræður á fundinum. |
||
|
|
||
|
6. |
201212006 - Kvörtun um sig á plötu |
|
|
Umræður um málið, bæjarstjóra falið að fara yfir málið og meta ábyrgð sveitarfélagsins. |
||
|
|
||
|
7. |
201302048 - Ósk um land undir skotvöll í landi Austurhóls |
|
|
Bréf frá skotfélaginu lagt fram, þar sem óskað er eftir afnot af landi sem sveitarfélagið á. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu. |
||
|
|
||
|
8. |
201302054 - Sala á olíumalarstöð |
|
|
Bæjarráð samþykkir að selja olíumararstöðina. |
||
|
|
||
|
9. |
201302057 - Jöklaleið - Samningur við landeigendur um ráðstöfun á styrk |
|
|
Gerð var grein fyrir drög að samningi við landeigendur í Hólmi og Brunnhól um byggingu gönguleiðarbrúar sem Sveitarfélagið Hornafjörður fékk í styrk í sínu nafni fyrir skömmu. Björn Ingi spurði um gönguleiðir og göngubrýr á gönguleiðinni og hvernig leiðin samræmist við stjórnunar og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi. |
||
|
|
||
|
10. |
201302019 - Fyrirspurn um skipulag Ránarslóð 3 |
|
|
Málið er í vinnslu. |
||
|
|
||
|
11. |
201302023 - Slökkviliðasafnasetur |
|
|
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við þá aðila sem hyggjast setja á fót Slökkviliðssafnasetur á Reykjanesi. Jafnframt greindi hann frá fundi sínum með Ragnari Imsland fyrir skömmu. Áhugi er hjá ofangreindum aðilum að fá elsta slökkvibíl Hornfirðinga á umrætt safn en verði áfram í eigu sveitarfélagsins. Bæjarstjóra falið að ræða við slökkviliðsstjóra um málið og kostnaðargreina lagfæringar á bílnum. |
||
|
|
||
|
12. |
201302046 - Auglýsingar eftir umsóknum vegna landsmóta UMFÍ |
|
|
Erindinu vísað til skóla,-íþrótta og tómstundanefnd. |
||
|
|
||
|
13. |
201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð |
|
|
|
||


