Fréttir
Séð frá Leiðarhöfða
Séð frá Leiðarhöfða
Séð frá Leiðarhöfða

13.01.2004 Fréttir

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2004 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi 19. desember s.l. Heildarvelta sveitarfélagsins og fyrirtækja þess er áætluð um 1,5 miljarður árið 2004. Lang stærsti málaflokkurinn eru fræðslumál og tekur hann til sín 58% af skatttekjum sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að skuldir lækki um 15 mkr. á árinu. Áætlað er að framkvæmdir við fyrsta áfanga í fráveitumálum hefjist á árinu og verður til þeirrar framkvæmdar varið 37,5 mkr. en heildarkostnaðurinn er áætlaður 200 mkr. Helstu verkefni hafnarsjóðs verða endurbygging Krosseyjarbakka og dýpkun á Grynnslunum.

Launakostnaður er afgerandi útgjaldaþáttur hjá sveitarfélaginu og tengdum fyrirtækjum, eða yfir 700 mkr. Heimild er fyrir 195 stöðugildum hjá öllum stofnunum sveitarfélagsins en um 290 manns eru á launaskrá. Um helmingur þeirra er vegna fræðslumála, tæplega 100 stöðugildi, vegna heilbrigðisstofnunarinnar eru 56 stöðugildi og rúmlega 50 stöðugildi vegna annarra málaflokka. Við þetta bætist vinnuskólinn yfir sumartímann með allt að rúmlega 100 starfsmönnum.

Sjá nánar


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica