Skólaakstur fyrir skólaárið 2004-2005
Á fundi bæjarráðs Hornafjarðar í gær fimmtudag var m.a. fjallað um skólaakstur fyrir skólaárið 2004-2005. Fram kom í upplýsingum frá bæjarstjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að nokkur óvissa ríkir um fyrirkomulag sérleyfa til hópferðaflutninga allt til ársins 2005, en þá verða öll sérleyfi boðin út. Þessi óvissa hefur áhrif á allt umhverfi fyrirtækja í þessari atvinnugrein. Það er mat aðila, sem leitað hefur verið álits hjá, að vafasamt sé að efna til útboðs á skólaakstri við þessar aðstæður.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við Austurleið/Kynnisferðir um að fyrirtækið sinni áfram á sama hátt og verið hefur skólaakstri í sveitarfélaginu út skólaárið 2004-2005.





Skrifa athugasemd