Reglur um farandsölu í Sveitarfélaginu
Af gefnu tilefni er bent á að í gildi eru reglur um farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Samkvæmt reglunum er öllum er heimilt að stunda farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði, enda fullnægi þeir skilyrðum laga nr. 28/1998 um verslunaratvinnu til að stunda slíka starfsemi og þeim skilyrðum sem sett eru í reglum þessum. Til þess að heimild fáist þarf að skila inn öllum nauðsynlegum gögnum, þar á meðal staðfesting á skráningu rekstraraðila í firma- eða hlutafélagaskrá, eintak nafnspjalds skv. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 28/1998 og upplýsingar um fasta starfsstöð og prókúruhafa. Þar þarf að koma fram nafn, kennitala, VSK númer rekstraraðila, hvaða vörur viðkomandi hyggst selja, og hvar og hvenær salan mun eiga sér stað. Sveitarfélagið getur látið stöðva farandsölu, komi í ljós að upplýsingar standist ekki.
Skorað er á alla hlutaðeigandi aðila að kynna sér reglurnar. Nánar er hægt að kynna sér innihald reglnanna með því að smalla hér.





Skrifa athugasemd