Fréttir
Veraldarvinir
Veraldarvinir
(úr myndasafni)

12.04.2006 Fréttir

Sveitarfélagið auglýsir eftir fólki í sumarstörf við Vinnuskóla

Þessa dagana er Tækni- og umhverfissvið sveitafélagsins að auglýsa eftir fólki í sumarstörf, um er að ræða störf sem öll tengjast Vinnuskólanum sem sveitarfélagið starfrækir á hverju sumri. Þau störf sem eru í boði: Verkstjóri Vinnuskólans, starfið felst í stjórn Vinnuskólans, skipulagningu og umsjón verkefna í samráði við deildarstjóra á tækni- og umhverfissviði. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri, hafa uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga. Einnig er reynsla af stjórnun verkefna og almennum garðyrkjustörfum æskileg. Einnig er auglýst eftir Flokksstjórum í Vinnuskólann á Höfn og í Nesjum. Það starf felst í að vinna með unglingum, aðallega í umhirðu grænna svæða. Einnig er æskilegt að umsækjendur séu 20 ára eða eldri, hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga sem og reynslu af almennum garðyrkjustörfum.

Að lokum er auglýst eftir  fólki til að vinna við slátt. Starfið felst í slætti á opnum svæðum, einkagörðum og almennri garðyrkju. Unnið er með m.a. sláttubíl, sláttuvélar og vélorf.  Umsækjendur í þau störf þurfa að vera 16 ára eða eldri.

Þeir sem hafa áhuga á að sækja um eða vilja benda öðrum á störfin, þá er bara að fara inn á "Atvinnuhlutann" hér á vefnum þar sem hægt er að nálgast allar upplýsingar sem og umsóknareyðublöð. 

Skila ber umsóknum fyrir 25. apríl n.k.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica