Forsetaheimsókn 25. og 26. apríl
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og eiginkona hans Dorrit Moussaieff koma í opinbera heimsókn í Austur-Skaftafellssýslu 25. og 26.apríl næstkomandi. Þriðjudaginn 25. apríl heimsækja forsetahjónin og fylgdarlið skóla, fyrirtæki og stofnanir á Höfn og dagskránni lýkur þann dag með fjölskylduhátíð í Íþróttahúsinu kl. 20:00 til heiðurs forsetahjónunum og eru allir velkomnir þangað. Miðvikudaginn 26. apríl halda forsetahjónin fyrst upp í Lón um Almannaskarðsgöngin og til baka um Almannaskarð að Seljavöllum í Nesjum. Þaðan liggur leiðin út í Nýheima á Höfn þar sem forsetinn mun ávarpa málþing um skapandi atvinnugreinar.
Að því loknu munu forsetahjónin halda vestur á bóginn koma við á býlum, skólum, stofnunum og söfnum á leiðinni. Endapunkturinn í vestri er þjóðgarðurinn í Skaftafelli. Heimleiðis halda forsetahjónin síðan frá Fagurhólsmýri að kvöldi miðvikudagsins.





Skrifa athugasemd