Fréttir
Öræfajökull og Jökulsárlón með merki Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður
Öræfajökull og Jökulsárlón með merki Sveitarfélagsins Hornafjarðar

16.05.2006 Fréttir

Góð afkoma hjá Sveitarfélaginu Hornafirði árið 2005

Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornfjarðar og tengdra fyrirtækja fyrir árið 2005 var lagður fram í bæjarstjórn 11. maí sl. Í endurskoðunarskýrslu kemur fram að innra eftirlit hjá sveitarfélaginu sé virkt og starfsmenn og stjórnendur séu meðvitaðir um mikilvægi þess. Jafnframt segir að allar kennitölur beri með sér trausta fjárhagsstöðu og rekstur. Samkvæmt þessu má fullyrða að rekstur og afkoma sveitarfélagsins var í mjög góðu horfi árið 2005. Afkoma samstæðunnar er 74,0 m.kr. betri en árið 2004. Langtímaskuldir lækka milli ára um 81,6 m.kr. Ef aðeins er litið á A-hluta, bæjarsjóð, þá er hagnaður ársins 105,5 m.kr. Langtímaskuldir A-hluta eru 565,8 m.kr. og lækka milli ára um 71,0 m.kr.

Helstu niðurstöður samstæðunnar eru:

  • Heildartekjur 1.205,0 m.kr.
  • Skatttekjur 876,5 m.kr.
  • Gjöld fyrir fjármagnsliði 940,0 m.kr.
  • Fjármagnsliðir 71,6 m.kr.
  • Handbært fé í árslok er 118,8 m.kr.
  • Langtímaskuldir 916,8 m.kr.
  • Heildareignir 1.984,0 m.kr.
  • Eigið fé 674,2 m.kr.
  • Niðurstaða ársins 94,5 m.kr.


Helstu málaflokkar:

  • Fræðslumál 470,0 m.kr. sem er 54,1% af skatttekjum
  • Sameiginlegur kostnaður 68,3 m.kr. sem er 8,2% af skatttekjum
  • Æskulýðs- og íþróttamál 61,4 m.kr. sem er 7,2% af skatttekjum
  • Félagsmál 43,9 m.kr. sem er 4,5% af skatttekjum
  • Menningarmál 34,0 m.kr sem er 3,9% af skatttekjum

Helstu framkvæmdir og fjárfestingar:

  • Jöklasýning 20,0 m.kr.
  • Íþróttavellir 4,8 m.kr.
  • Götur 47,8 m.kr.
  • Gólf í íþróttahús 8,8 m.kr.
  • Fráveita 26,7 m.kr.
  • Vatnsveita 3,2 m.kr.
  • Hafnarframkvæmdir 27,4 m.kr.


Hornafjarðarhöfn var rekin með 17,0 m.kr. hagnaði þar sem tekjur voru 97,7 m.kr. og gjöld 80,6 m.kr. og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands var rekin með um 4,0 m.kr. hagnaði, tekjur voru 315,2 m.kr. og rekstrargjöld 311,5 m.kr.

Frekari upplýsingar er hægt að sækja hér


Hornafirði 16. maí 2006.
Albert Eymundsson, bæjarstjóri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica