Bæjarráð styrkir ungt fólk til þátttöku á Listahátíð á Seyðisfirði
Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt 25 þúsund króna framlag til að styðja unga Hornfirðinga til þátttöku í Listahátíð ungs fólks Austurlandi, LungA sem haldin verður dagana 17.-23. júlí nk. á Seyðisfirði. Hátíðin er ætluð ungmennum á aldrinum 16 ? 25 ára og er samblanda af fræðslu og skemmtun. Boðið er upp á 7 mismunandi listasmiðjur og fjölbreytta dagskrá alla dagana. LungA hlaut menningarverðlaun SSA fyrir árið 2004 og Eyrarrósina í janúar. Umsóknir berist á bæjarskrifstofur Hornafjarðar fyrir 20. júní. Nánari upplýsingar veitir Ólafía I.Gísladóttir.
Sjá einnig á www.lunga.is





Skrifa athugasemd