Allt hefur áhrif –einkum við sjálf
Þessi yfirskrift eru einkunnarorð þróunarverkefnis sem Sveitarfélagið Hornafjörður , ásamt 24 öðrum sveitarfélögum er að vinna í samvinnu við Lýðheilsustöð. Markmiðið með verkefninu er að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra. Aðaláherslan er lögð á hreyfingu og góða næringu. Með verkefninu er leitast við að vekja fólk til umhugsunar um heilsuna, standa fyrir fræðslu um það sem hefur áhrif á heilsuna, skoða hvaða þættir sem hafa áhrif á heilsuna eru í lagi og hvaða þætti er hægt að bæta í sveitarfélaginu og virkja sem flesta á öllum aldri til að eiga hlutdeild í verkefninu.
Stýrihópur er starfandi í sveitarfélaginu um þetta verkefni og hefur upplýsingum um hverjir skipa hann og verkefnið verið dreift til íbúa sveitarfélagsins og eins má finna þær hér (sækja bækling).




Skrifa athugasemd