Bæjarstjórnar- og borgarafundur í Holti á Mýrum
Næsti fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í Holti á Mýrum næstkomandi þriðjudag (6.feb.) og hefst hann kl. 17:30 . Það sem er á dagskrá fundarins eru fundargerðir, 3ja ára áætlun, deiliskipulag við Haukafell, aðalskipulagsbreyting vegna Falljökulskvíslar, aðalskipulagsbreyting vegna Víkurbrautar 11 og 13, aðalskipulagsbreyting vegna lagningar ljósleiðara í Sveitarfélaginu Hornafirði og í lokin verða fyrirspurnir. Fundurinn verður tekinn upp að venju og verður hann sendur út á SkjáVarpi fimmtudagskvöldið 8. febrúar kl.20.
Borgarafundurinn hefst um kvöldið kl. 20 í Holti á Mýrum og verður vegarstæði yfir Hornafjaðarfljót og fjallskil ásamt öðrum málefnum sveitarfélagsins á dagskrá.





Skrifa athugasemd