Fréttir
Hjólað í vinnuna 2007
Hjólað í vinnuna 2007
Hjólað í vinnuna 2007

26.04.2007 Fréttir

6 vinnustaðir á Hornafirði hjóluðu 2666 km. í 850 daga í síðustu keppni

Hjólað í vinnuna – Ísland á iði

Ísland á iði - Hreyfa sig - er landsverkefni Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. Með þessu verkefni eru starfsmenn fyrirtækja hvattir til að hjóla eða ganga í vinnuna. Verkefnið er sett upp sem keppni milli fyrirtækja og sveitarfélaga. Keppnin hefst miðvikudaginn 2.maí og stendur til 22.maí. Allar upplýsingar um verkefnið er að finna á vefnum www.isi.is. Í fyrra tóku 6 vinnustaðir á Hornafirði þátt í verkefninu og hjóluðu starfsmenn þeirra alls 2666 km. í 850 daga sem dugði í 6. sæti fyrir sveitarfélagið í heildina. Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar hvetur fyrirtæki og alla bæjarbúa til að taka þátt í þessu verkefni og um leið að hreyfa sig sem mest ekki bara meðan þetta verkefni stendur heldur allan ársins hring. Gott er t.d. að hjóla, ganga, synda og skokka. Mynda hópa sem hafa það að markmiði að auka hreyfingu.

Nú þegar vorið er komið er fátt heilsusamlegra en að koma út í gróandann. Gleymið ekki að setja upp hjálmana og teygja vel eftir að hafa hreyft ykkur. Góða hreyfing er gott innlegg í heilsubankann.

Gangi ykkur vel.


- Æskulýðs- og tómstundarráð Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica