Fréttir
Höfn
Höfn
Séð frá Hótel Höfn á góðum sumardegi (úr myndasafni)

11.05.2007 Fréttir

Vorhreinsun á lóðum og nánasta umhverfi

Undanfarna daga hefur sólin yljað okkur og minnt okkur á að vorið er komið. Við á tækni- og umhverfissviði Hornafjarðar óskum eftir því við forstöðu- og umsjónarmenn fyrirtækja og opinberra stofnanna, sem og bæjarbúa alla, að taka saman höndum og gera vorhreinsun á lóðum sínum og nánasta umhverfi. Nokkuð hefur borið á rusli í bænum okkar sem safnast m.a. saman í runnum og beðum okkur til ósóma. Starfsmenn tækni og umhverfissviðs Hornafjarðar hvetja til sameiginlegs átaks bæjarbúa til að gera dagana 19. og 20. að umhverfisdögum og taka til á lóðum sínum. Varðandi bílhræ bendum við á að móttaka bílhræja er í gámastöð og er hægt að fá greitt fyrir þau hjá  sýslumanni.

Starfsmenn áhaldahúss geta lagt garðeigendum lið sé þess óskað. Vinsamlega hafið samband við okkur í Tæknideildinni og við gerum það sem við getum til að aðstoða.
Tæknideildin hvetur bæjarbúa til að taka til hendinni og efna til t.d sameiginlegs hreinsunardags í sinni götu eða hverfi og gera sér glaðan dag að lokinni hreinsun t.d. með grillveislu eða álíka.
Sími á bæjarskrifstofum er 470 8000.

- Tækni og umhverfissvið Hornafjarðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica