Lífshlaupið, nýtt hvatningar- og átaksverkefni
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir nýtt hvatningar- og átaksverkefni, Lífshlaupið, sem höfðar til allra aldurshópa. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira hvort sem er í frítíma, heimilisstörfum, vinnu eða skóla. Farið er eftir hreyfiráðleggingum Lýðheilsustöðvar þar sem börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Vefsíða Lífshlaupsins er og en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í: Vinnustaðakeppni frá 4.-14. mars fyrir 16 ára og eldri Hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 4. - 14.mars, fyrir 15 ára og yngri. Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð niður sína hreyfingu allt árið.
Við hvetjum alla til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu. Skráning er hafin inn vefsíðu verkefnisins.
Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar





Skrifa athugasemd