Fráveitusamþykkt fyrri umræða
Fimmtudaginn 10. apríl kl: 20:30 er boðað til íbúafundar í Hrollaugsstöðum þar sem fjallað verður um fráveitur, úrgangsmál og lýsingu. Einnig kynnir Gústaf Magnús Ásbjörnsson verkefni Landgræðslu ríkisins er miðar að uppgræðslu innan héraða. Markmið með fundinum er að kynna fráveitusamþykkt sem er til umræðu innan sveitarstjórnar. Fráveitusamþykktin miðar að því að skilgreina almennar reglur sem eru í gildi í þéttbýli og koma fráveitumálum í sveitum í eðlilegt horf. Sveitarfélagið mun koma á reglubundnum tæmingum á rotþróm, eins og gengur og gerist annars staðar á landinu, og tryggja með þeim hætti virkni rotþróa. Hér er um viðamikið verkefni að ræða svo það er nauðsynlegt að kynna það vel áður en hafist er handann.
Samhliða kynningu á fráveitusamþykkt og fyrirkomulagi á losun rotþróa verða til umræðu úrgangsmál og möguleg uppsetning grenndargámastöðva í sveitum. Í dag erum við komin með ákveðinn farveg fyrir flokkaðan úrgang og nú þarf að leita leiða til að ná sem mestu af honum inn til endurvinnslu. Fyrirhuguð lýsing í dreifbýli verður til umræðu og Gústaf Magnús Ásbjörnsson frá Landgræðslunni verður með kynningu um héraðsáætlun sem miðar að því að vinna áætlunina í samstarfi við heimaaðila
Hér eru því mörg áhugverð málefni til umræðu og gott að fá sem flesta til að taka þátt í umræðunum.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdarstjóri umhverfis- og tæknisviðs





Skrifa athugasemd