Fréttir
Öræfajökull og Jökulsárlón með merki Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður
Öræfajökull og Jökulsárlón með merki Sveitarfélagsins Hornafjarðar

06.05.2008 Fréttir

Endurskoðendur segja sveitarfélagsið sýna trausta fjárhagsstöðu og rekstur

Ársreikningar Sveitarfélagsins Hornafjarðar A- og B hluti voru lagðir fram til fyrri umræðu í Bæjarstjórn Hornfjarðar 5. maí sl. Samkvæmt rekstrarreikningi í ársreikningi Sveitarfélagsins Hornafjarðar árið 2007 námu rekstrartekjur í samanteknum ársreikningi sveitarsjóðs 1.508,6 milljónum króna, en þar af voru rekstrartekjur A-hluta stofnana 1.352,4 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum var jákvæð um 360,2 milljónir króna. Í A-hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 341,7 milljónir króna en jákvæð um 18,5 milljónir króna hjá B-hluta stofnunum. Heildareignir samkvæmt samanteknum ársreikningi voru 2.588,2 milljónir króna, en heildareignir sveitarsjóðs voru 2.102,4 milljónir króna.

Eigið fé samkvæmt samanteknum ársreikningi var 1.405,6 milljónir króna og hlutfall eiginfjár af heildareignum var 54,3%. Eigið fé sveitarsjóðs var 1.275,4 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 60,7 %. Samkvæmt sjóðstreymi var handbært fé í lok árs 476,2 í A hluta.

Endurskoðendur sveitarfélagsins telja að allar kennitölur í rekstri beri með sér trausta fjárhagsstöðu og rekstur.

Ársreikningur 2007 (pdf)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica